Ţú brjóstgóđa barmmikla fljóđ
sem barst mig á herđum og lend.
Kenndir og kvađst til mín ljóđ,
af kóngum og fornvćttum send
ađ gćta mín guđlega móđir
og greiđa um ókunnar slóđir.
Ó synduga systir og bróđir
samviska var yđur kennd.
Ég veit ekki hvort ţiđ hafiđ almennilega áttađ ykkur á ţví, kćru landsmenn - en íslenska kvennalandsliđiđ í knattspyrnu sigrađi Pólverja 10:0, í undankeppni EM í gćr.
TÍU FOKKING NÚLL!
Svo eru menn ađ vćta buxur yfir jafntefli karlaliđsins viđ útbrunna og kengtimbrađa Ţjóđverja. Iss.
Ţetta er raunverulegur sigur, afdráttarlaus og glćsilegur - og ef einhver svo mikiđ lyftir augabrún og tuldrar ađ ţetta sé nú 'bara' kvennafótbolti skal ég taka ţann hinn sama og loka hann inn í litlu rými međ Olgu Fćrseth ţangađ til hann skráir sig grenjandi í bćđi Bríeti og kvenfélag Sauđárkróks.
- Auk ţess ţarf enginn ađ segja mér ađ ţetta hafi bara veriđ kvenmenn í liđi Pólverja.
Loks legg ég til ađ Ásthildur Helgadóttir, fyrirliđi, verđi gullhúđuđ og henni komiđ fyrir í stađ styttunnar af Jóni Sigurđssyni á Austurvelli - eftir ađ hún leggur skóna á hilluna.