Lesbók09.08.03 — Enter

Hvað í djúpfrystum dauðanum á þetta að fyrirstilla?

Nú rétt í þessu rak ég augun í sjónvarpsskjá og sá þann ófyrirleitnasta hroða sem ég hef um dagana augum borið. Á skjánum birtist listamaðurinn ENTER með myndband við lagið 'Something more'. Er ekki allt í lagi?!

Þessi falsenter stóð þarna niður í fjöru og muldraði eitthvað ofan í barm sér ásamt því að baða út öngunum og gjóa augunum út í loftið.

Og ekki nándar nærri nóg með það - því ég fékk ekki betur séð en að þessi ósvífni svikahéri væri af kyni kvenna!

Ég heimta opinbera afsökunarbeiðni og allrahelst höfuð þessa nafnvillings á fati - hún getur kallað sig Megas eða Erró fyrir mér, en Enter er lögverndað starfsheiti, fjandinn hafi það!

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182