Fyrir þá sönnu Íslendinga sem fara til Þýskalands:
- Talið ekki við innfædda, nema með því að öskra óþægilega hátt á þá.
- Sprænið á eins margar opinberar byggingar, styttur og ríkisstarfsmenn og þið getið.
- Ávarpið allar konur 'Eva' og alla karlmenn 'Adolf'.
- Maulið hvalkjöt í tíma og ótíma og gangið í selskinnsfötum - helst með kópshöfuð um hálsinn.
- Finnið Rudi Völler og spyrjið hvort hann vilji skipta á ekta íslenskri kind og apanum í þýska markinu.
Fyrir þá sem kjósa að svíkja föðurlandið og sitja heima:
- Málið híbýli ykkar í fánalitunum og komið fyrir líkneski af Eiði Smára úti í garði.
- Aflýsið öllu á morgun. Öllu!
- Lokið alla efasemdarmenn (konur, listamenn, blakáhugamenn - eða aðra þá sem ekki skilja list fótboltans) inni í nærtækum skápum.
- Fægið sjónvarpsskjáinn - tvisvar.
- Sofið með mynd af Ásgeiri Sigurvinssyni undir koddanum.
- Biðjið fyrir landsliðinu í kvöld.