Nú er liðin vika frá því Kaktuz og Myglar lokuðu sig af inni á kaffistofu til að "..prófa nýja þvereindaskerminn" sem þeir félagar hönnuðu eftir að þeir fóru saman á vísindahrollinn "The Core".
Annað hvort eru þeir nú þegar komnir að kjarna jarðarinnar eins og til stóð - eða þeir eru dauðir.
( Það minnir mig reyndar á limru sem eðlisfræðikennarinn minn fór oft með:
yfirborð jarðar er ávalt
undir því segulsvið, skáhalt
innst er svo kjarni sem er hætt við að harni
- helvíti verður mér þá kalt )
Æ, ég vona að þeir séu ekki dauðir, bölvaðir. Ég kunni ágætlega við kaffið hans Myglars og það var alltaf svo góð lykt af Kaktuzi.