Sálmur – Númi Fannsker

Geirfuglinn brýnir - goggsins egg.
Gráðugur rýnir - undir vegg.
Liggur þar loðið - kisuhró.
Langar í soðið - og korriró.

Blóð kisu vellur - blátt að lit.
Brátt heyrist hvellur - með kúluþyt.
Fuglshræið liggur - fölt á brá.
Fangarinn styggur - horfir á.

Á Geira er gleypa - vildi kött.
Grár náð'að hleypa - með veiðihött.
Kisa var bara - klækjatól.
Kjöt þarf að spara - um þessi jól.

Lesbók frá fyrri tíð

Ég varð óþægilega var við það í gærkvöldi á heimili mínu, að brauðið var búið.

Þetta þýddi það að annað hvort sylti ég heilu hungri eða ég klæddi mig upp og keypti meira brauðmeti, þó félítill væri með afbrigðum.

Veður var afleitt en ég harkaði af mér og öslaði í nístingskulda að hverfisverslun minni vongóður um æti.

En svei þeim hundingjum sem þar ráða ríkjum, það var þá búið að loka.

Heldur þótti mér heimurinn því harður þegar ég lagðist til svefns, saddur af kexkruðeríi og ostbita - en svikinn um mitt daglegt brauð.

---

Mér varð hugsað til þessa þegar ég í dag frétti að íbúar Norður-Kóreu eiga við nákvæmlega sama vandamál að stríða.

Nákvæmlega það sama.


Enter 9/2/04
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Myglar – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Leikrit
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Kaktuz – Saga
 
Kaktuz – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA