Það er gaman að segja frá því að miðlægur heilbrigðisgagnagrunnur Baggalúts hefur slegið rækilega í gegn, enda tími til kominn að slíkt tól sé smíðað. Mikill fjöldi hefur sótt upplýsingar um sig í gagnagrunninn og hafa nær engar athugasemdir borist um rangar upplýsingar. Þetta þykir mér sanna hversu vel tæknimenn Baggalúts eru vaxnir starfi sínu.