Lesbók28.02.03 — Enter

Úff.

Við rannsóknir mínar og uppsetningu á miðlægum gagnagrunni á heilbrigðissviði neyddist ég til að smita mig með öllum hugsanlegum pestum, flensum, vírusum og sýkingum.

Ykkur grunar ekki hve samverkandi áhrif lömunarveiki og magakveisu geta verið óbærileg.

En nú er ég kominn aftur til starfa, hressari en nokkru sinni. Ekki veitir af því hér á ritstjórn er allt á heljarþröm, mínir menn á eftir með efnisskil og ógreiddir reikningar í hrúgum í hverju horni. Hver ætli hafi keypt 80 kg. af hrísgrjónum? Nú eða eldfast, kremgult baðkar? Fussumsvei.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182