Í dag mæli ég með frönskum kartöflum, kæstum hákarli og undanrennu. Einnig mæli ég með því að fólk með þurra húð eða flösu festi kaup á rakatæki, nefmæltir hreinlega þegi og að fólk með permanent líti í spegil. Ég mæli svo með Eurovision, hreinum sokkum, bjór og miklum hvítlauk.