Þrengir að
þjökkur skór
steypibað, stóran bjór.
Helst ég kýs Hummelskæði,
aligrís, algjört æði;
þarf í einn þjökkvan skó.
Hlautteinn beinn,
hann er nóg!
Kæra fésbók.
Nei, ég vil ekki vinna 50.000 krónur. Ég vil heldur ekki vinna æpaddtvö eða djúpglufudekur hjá Dillibossasetrinu. Mig langar ekki rassgat í Samsung Galaxy farsíma, hversu fullkominn sem hann þykist vera – og ég hef nákvæmlega engan áhuga á að eignast úr með ösku úr Eyjafjallajökli. Mér býður við mysupróteini og fyrr botnfrýs í helvíti áður en ég *læka og kvitta* fyrir franskættuðum maskara. Ég hef alla þá fallegu húð sem ég þarf á að halda og plokka mig og mín hár sjálfur ef þörf krefur – með eða án 50% afsláttar.
Þannig að, mín kæra, þú mátt troða öllum þínum æfónfimmum, tveimurfyrireinum og ljúffengu morgunverðarhlaðborðum upp í ólúbaðan lækhnappinn á þér.