Lesbók05.02.03 — Enter

Hér er allt og ekkert að gerast. Útgáfan stendur þessa dagana í hörðum samningaviðræðum vegna auglýsinga á vefsvæðinu, en útlit er fyrir að á þeim verði umtalsverðar breytingar á næstunni þar sem auglýsingatekjur hafa hingað til skilað sér seint og illa - jafnvel ekki.

Spesi er ekki mönnum sinnandi þessa dagana, hann er með júróvisjón á heilanum og sönglar þennan ófögnuð daginn út og inn. Mér er meinilla við þetta gaul, en verð þó að viðurkenna að ég er oggulítið stoltur af honum Kalla okkar Olgeirssyni - hann er góður drengur.

Kaktuz verður undarlegri með hverjum deginum eftir að það byrjaði að snjóa. Nýjasta æðið hjá honum er að fletta sig klæðum og hlaupa berrassaður út í skafl. Helst að Myglar hafi gaman að vitleysunni í honum.

Til að losna augnablik við allt þetta umstang fórum við Númi og snæddum hádegisverð ásamt samkynhneigðum vini hans - það var ágætt - kom báðum á óvart hvað hann var eðlilegur.

 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
        1, 2, 3 ... 180, 181, 182