Ég var að spjalla í gær við Karl Olgeirsson vin okkar, sem hefir verið okkar helsti bandamaður þegar að tónlistarsköpun kemur. Mikið er þetta indæll drengur og góður, að ég tali nú ekki um hæfileikana! Yndislegt að eiga svona góða menn að. Ég vona að honum farnist vel í framtíðinni og að við félagarnir getum lagt okkar af mörkum til að svo verði.