Ónáðið ekki

» SÆKIÐ LAGIÐ HÉR | » EÐA KAUPIÐ Á tónlist.is

Lag og ljóð: Bragi Valdimar Skúlason

Upptökustjórn: Guðm. Kristinn Jónsson

 

Söngur: Guðmundur Pálsson & Fríða Dís Guðmundsdóttir

Gítar: Guðmundur Pétursson & Þorsteinn Einarsson

Bassi: Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson

Trommur: Kristinn Snær Agnarsson

Píanó: Sigurður Guðmundsson & Mikael Svensson

Saxófónn: Jim Hoke

 

Tvítl

ÓNÁÐIÐ EKKI

Í litlu hótelherbergi
við hjúfrum okkur saman til að dúra.
Ég veit að fokkið fer hvergi
mér finnst bara svo notalegt að kúra
með þér.

 

Í kóngabláum kostaslopp
og kasmírföðurlandi innanklæða
Við pöntum okkur ostapopp
og eitthvað soldið fanzý til að snæða
með þér.

 

Ónáðið ekki.
Við þurfum að fá pínu frið.
Ónáðið ekki.
Við erum að komast á skrið.
Ónáðið ekki.
Við komum þér hreint ekki við.

 

Í satínofin sængurver
setjumst við með freyðivín og blöðrum.
En hér á lítill hængur er
við heitbundin og lofuð erum öðrum.
Því er nú ver.

 

Við mænum inn í míníbar
og metum hvað sé drekkandi af víni þar.
Við erum geðveikt gerólík
en gleðjumst saman yfir frírri erótík.

 

Ónáðið ekki.
Við þurfum að fá dáldin frið.
Ónáðið ekki.
Við erum að komast á skrið.
Ónáðið ekki.
Við komum þér barekki við.

baggalútur.is