BAGGALÚTUR
FRÉTT — 3/12/16 — Enter
Sagði óvart „gjörðu svo vel“ við matargest
Þjónninn hafði áður fengið áminningu fyrir að spyrja gest „hvernig smakkaðist?“

Uppi varð fótur og fit á veitingastaðnum Las Vegans í miðborginni í gærkvöldi þegar þjóni varð á að segja „gjörðu svo vel“ við einn matargestanna.

Varð sá hinn sami að vonum sármóðgaður, enda í óaðfinnanlegu líkamlegu ásigkomulagi og mátti ætla af orðum þjónsins að hann óskaði honum þess að bæta á sig óþarfa líkamsþyngd — sem næmi allt að þremur kálblöðum og einhverju torkennilegu lárperujukki í snefilmagni. Auk vatnsglass.

Var þjóninum tafarlaust vikið frá störfum og honum gert að fara í sjö mánaða þagnarbindindi auk þ.ess að sækja námskeið um líkamsvirðingu, meðhöndlun grænmetisætna og tilfinningagreind.