BAGGALÚTUR
FRÉTT — 1/11/15 — Enter
Hófsamur miðjuhákarl gleypir fjölskyldu úr Efra–Breiðholti
Hákarlinn hefur unnið ýmis trúnaðarstörf fyrir sjálfstæðisflokkinn á undanförnum árum.

Fjölskylda úr Efra–Breiðholti varð fyrir því óláni nú síðdegis að vera étin af sturluðum hákarli, þar sem þau voru að leita að marflóm og plastafgöngum í soðið.

„Þetta er ofsalega leiðinlegt, sérstaklega í ljósi þess að hákarlinn skilgreinir sig sem hófsaman miðjuhákarl og hefur talað mikið fyrir félagslegum jöfnuði, launajafnrétti og bættri heilbrigðisþjónustu undanfarið,“ segir talsmaður hákarlsins.

Svo virðist sem eðli hákarlsins hafi einfaldlega borið greyið litla ofurliði þegar hann sá fjölskylduna paufast þetta í fjörunni — en honum til varnar virkaði hún algerlega bjargarlaus og virtist í fljótu bragði ekki hafa neitt félagslegt bakland.