BAGGALÚTUR
FRÉTT — 4/12/15 — Enter
Ólafur Ragnar flýtir för sinni til Íslands
Forsetinn er á ferð í þjóðarloftbelgnum, sem ber hið skemmtilega nafn Sigmundur.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og öryggisventill, hefur ákveðið að flýta heimför sinni frá útlöndum þar sem hann er í einkaerindum.

Ólafur Ragnar freistar þess nú, sem kunnugt er, að vera fyrsti þjóðhöfðinginn sem flýgur umhverfis jörðina án þess að taka pissustopp.

Voveiflegir atburðir hér heima hafa sett þessa áætlun í uppnám en forsetinn lendir við Bessastaði eldsnemma í fyrramálið.

Hann vildi þó taka fram að forseti Íslands mætir aldrei of seint. Né of snemma. Hann mætir á svæðið nákvæmlega á þeim tíma sem hann ætlar sér.

Ólafur hyggst svo gera aðra tilraun síðdegis á morgun, eða eftir að hann hefur rassskellt forsætisráðherra, skipað utanþingsstjórn og bjargað lýðveldinu frá glötun.