Aðventulag Baggalúts 2008 er hugljúft ástralskt vögguljóð sem í íslenskri þýðingu nefnist

(Hægrismellið og veljið 'Save as...')

Ljóðið er eftir Braga Valdimar Skúlason.

Lagið syngur tenórinn angurværi Guðmundur Pálsson en Kristbjörn Helgason sinnir uppistöðuröddum.

Eftirtaldir aðilar aðrir komu að fæðingu verksins:
Davíð Þór Jónsson – Rhodes, Petrof flygill, Korg strengjavél, básúna, horn, slagverk
Helgi Svavar Helgason – Trommur, slagverk
Smári Guðmundsson – Jólabjöllur
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson – Bassi
Guðmundur Kristinn Jónsson – Super Phaser
Guðmundur Pétursson – Kassagítar, rafgítar
Roland Hartwell – Strengir
Ásgeir Óskarsson – Glitrandi heimur (óafvitandi)

Hljóðupptökum stýrði Guðmundur Kristinn Jónsson í Hljóðrita, Hafnarfirði með dyggri aðstoð Karls Sigurðssonar, sem auk þess hafði yfirumsjón með raddbeitingu og - setningu.

ÞAÐ KOMA VONANDI JÓL

Allflestar útgönguspár
eru á eina lund;
þetta var skelfilegt ár.
Hér út við heimskautsins baug
hnípin þjóð – þráðbeint á höfuðið flaug.

Allt þetta útrásarpakk
át á sig gat
svo loftbólan sprakk.
Nú eru lífskjörin skert, mannorðið svert,
Hvað hafið þið gert?

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við skellum könnu upp á stól
og Sollu í kjól.
Þrátt fyrir allt
þrátt fyrir verðbólguskot
– þjóðargjaldþrot.

Við áttum íbúð og bens
og orlofshús.
Allt meikaði sens.
Góðgerðir gáfum og blóð
greiddum í – dulítinn séreignasjóð.

En nú er allt þetta breytt og eftir er
nákvæmlega ekki neitt.
Já nú er útlitið dökkt
ljósið er slökkt
og við erum fökkt.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Þó vanti möndlu í graut
og amerískt skraut.
Þrátt fyrir allt
þrátt fyrir háðung og smán
– myntkörfulán.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við étum á okkur gat
af innlendum mat.
Og þrátt fyrir allt
misnotum sykur og salt.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við krössum afmælið hans
– heimslausnarans.
Því að þrátt fyrir allt
drekkum við mysu í malt.

(Hægrismellið og veljið 'Save as...')

Munið svo að kaupa sem allra, allra flest eintök af nýrri samkvæmis- og gleðiskífu Baggalúts, Nýjasta nýju, sem og jólahljómskífunni Jólum og blíðu svo þið fáið nú eitthvað í skóinn.

Kynnið ykkur einnig fyrri jólalög

Lögin má flest nálgast á Tónlist.is.