Frétt — N?mi Fannsker — 24. 11. 2008
Sérfræðingur ráðinn
Dr. Maramurtimurti sýndi ráðamönnum þjóðarinnar nokkrar klassískar aðferðir og ráð til að takast á við kreppuástandið.

Erlendur sérfræðingur; Dr. Rama Maramurtimurti - prófessor við konunglega háskólann á Túvalúeyjum, hefur verið skipaður sérstakur ráðgjafi ríkisstjórnarinnar.

Helsta verkefni Dr. Maramurtimurti verður, að sögn Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, „að leita leiða út úr þeim vanda sem nú steðjar að íslenskri þjóð og samfélagi og beita til þess viðurkenndum, klassískum aðferðum í stjórnmála- og félagsfræðum.“

Elsku Aitken okkar,

láttu ekki svona. Komdu aftur tll okkar. Við getum þetta ennþá! Endurkoma Rick Ashley verður ekki söm án þín! Plís, hringdu.
- Þínir vinir að eilífu,
Stock og Waterman

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: