Á sérlegum neyðarfundi norðurlandaráðs nú fyrir stundu, í samvinnu við ríkisstjórnir Danmerkur, Noregs, Finnlands, Íslands og Svíþjóðar var ákveðið að skipta löndunum tafarlaust upp í smærri einingar.
Er það gert í ljósi nýfenginna úrslita í Eurovision, en talið er að tugir, jafnvel hundruðir stiga, sem norðurlöndin gætu auðveldlega gefið hvert öðru fari til spillis með núverandi fyrirkomulagi.
Fá Færeyjar, Grænland, Álandseyjar, Jótland og Lappland sjálfstæði þegar í fyrramálið auk þess sem gert er ráð fyrir að Skánn, Svalbarði og Kristjanía bætist í hópinn fljótlega.
Hefur ríkisstjórn Íslands ákveðið að leggja Vestmannaeyjar, Vestfirði og Flatey á Breiðafirði í púkkið.
Atvinna óskast
Reyndur fjölmiðlamógúll óskar eftir vinnu við hæfi. Reykir ekki.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.