


Hvađa mölúldni og mađkétni óţverri hefur eiginlega fengiđ ađ viđgangast í ţessari bann- og skuldsettu Orkuveitu okkar? Fordćmalaus óráđsía, gegndarlaust fimbulsvínarí og linnulaust gleđispređ međ almannafé.
Fussumfokkingssvei.
Ég legg hér međ til og mćli um ađ eigendur ţessa útmigna sandkassa helstu gćludýra borgaryfirvalda, reki alla oföldu orkuboltana öfuga út úr ţessu bruđlhýsi án tafar og komiđ ţeim fyrir í látlausu húsnćđi annars stađar í borginni. Ţađ er t.d. ágćtis hús á horni Suđurlandsbrautar og Gernsásvegar, sem gćti hentađ starfseminni fullkomnlega.
Orkuhreiđrinu mćtti svo gjarnan breyta í leikskóla – međ heimsins stćrsta boltalandi í anddyrinu.

RIKKI G. skrifar á fésbókarsíđu útvarpsstöđvarinnar FM957 í morgun:
„Sććććlar! Hver er Facebook notkun ţín á dag í klukkutímum taliđ??“.
Stuđávarpiđ 'Sććććlar!' kannast ég ekki viđ í ţessari mynd. Ţrjú ć eru feykinóg til áhersluauka. Auk ţess ţykir mér óţarfa bruđl ađ nota tvö spurnarmerki í lok setningar. Nema mađur sé ţeim mun áfjáđari í ađ fá svar um hćl – sem máske var raunin í ţessu tilviki.
Ţórunn, hún ţarf sig ađ passa.
Ţurfi hún hljóđnemađ kjassa
mćtti hún minna
mala viđ kynna
um annarra ćttingja rassa.
Kosiđ hef ég kúkalabba
kjána, bjána, idíjóta
sem skrökva, ljúga, ginna, gabba
gefin loforđ svíkja, brjóta.
Enda sjálfur aligrís
sem ekkert skárra kýs.






Ţađ var gaman ađ sjá Steven Spielberg (14) fylgjast međ leik Liverpool á Vitabar. Hann fékk sér ostborgara.

Spessi ljósmyndari (17) og Kolfinna Baldvins (16) mćttu sem japanski fáninn á uppskeruhátíđ blindrafélagsins.

Ţessar hressu frönsku jómfrúr (31-42) bjuggust allar viđ ađ missa meydóminn á Celtic Cross um helgina.

Baggalútur er eini skemmtistađur landsins sem leyfir reykingar, apahald og nektardans. Skrifstofan er opin alla miđvikudaga frá kl. 8.30–13.45.
Vinsamlegast hafiđ samband viđ ritstjorn@baggalutur.is ef ţiđ viljiđ kaupa hlutabréf, kvarta – ellegar tilkynna um lífsmark á öđrum lífstjörnum.