Frétt — Enter — 22. 2. 2007
Lögregla fær klámhund
Hér sést rannsóknarfemínisti egna hundinn með klámfengnu efni.

Sérþjálfaður klámhundur tók til starfa hjá lögreglunni í Reykjavík í dag.

Hundurinn, sem gegnir nafninu Sóði, hefur hlotið þjálfun í að þefa uppi hvers kyns klámfengið efni, einkum rafrænt - en slíkir hundar hafa reynst vel í ýmsum nágrannalöndum okkar og þá einkum við leit í grenum klámfíkla.

Miklar vonir eru bundnar við hundinn, þó nokkrum erfiðleikum hafi verið bundið að kenna hundinum, sem þjálfaður er í Danmörku, að greina milli kláms og erótíkur, skv. íslenskum stöðlum.

Atvinna óskast

Vanur ljónatemjari óskar eftir atvinnu á höfuðborgarsvæðinu. Get hafið störf nú þegar. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: