— HLJÓMSVEITIN —


Hljómsveit Baggalúts er skipuð nokkrum valinkunnum hljóðfæraleikurum og hjartkremjandi söngvurum sem töfrað geta fram sjóðbullandi stemningu hvar sem er - hvenær sem er. Fullmönnuð telur sveitin á annan tug liðsmanna, en semja má um að brjóta hópinn niður í smærri einingar ef tilefni þykir til.


Sveitin tekur að sér að leika fyrir dansi og við hátíðleg tækifæri önnur, innan lands sem utan, gegn ríflegri þóknun.


Hægt er að komast í tæri við sveitina með því að senda póst á baggalutur@baggalutur.is og/eða kiddi@baggalutur.is.

Facebook Myspace Tonlist.is RSS

Baggalútur er hýstur með stolti hjá SKÝRR

— HLJÓMSKÍFUR —

Jól & blíða

Baggalútur

Á disknum má finna 11 sígild hátíðar- og aðventulög.

Aparnir í Eden

Baggalútur

Þessi hljómskífa Baggalúts er undir sterkum áhrifum frá Hawaii tónlist auk þess sem hún inniheldur hefðbundið innsveitaköntrí í bland. Skífan inniheldur 21 sönglag og leggja fjölmargir gestir hönd á plóg, þ.á.m. Björgvin Halldórsson, KK og Valgeir Guðjónsson að ógleymdum Borgardætrum.

Pabbi þarf að vinna

Baggalútur

Fyrsta hljómskífa Baggalúts sló öll met í sölu kántrítónlistar á árinu 2005. Meðlimum köntrísveitar Baggalúts var fagnað sem þjóðhetjum auk þess sem lagið „Pabbi þarf að vinna í nótt“ hlaut íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lag og texta ársins - en þau verðlaun þykja afar merkileg í ákveðnum kreðsum.


— SJÓNVERPILL —