Og ég sem var langt kominn með níðdrápuna um Herbert! bölvar ógurlega og fer að leita að rímorðum við "slef"
hæ, ég heiti slefbjörn hafralón og er nír hérna
Annar brandarakall eða ert þú sami vitleysingurinn og þóttist vera Herbert í gær. Skammastu þín, snautaðu út og láttu aldrei sjá þig hér aftur. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Þennan hefur Herbjörn skilið eftir á vertshúsi í Trankebar!
Ég trúi því ekki upp á neinn sómakæran Gestapóa að hann sé að búa til þessa óskrifandi vitleysinga.
Assgoti virðist hann Herbjörn hafa dreift Hafralónsættinni víða.
Fyrst þetta "herbert" og svo þú? Hvur andskotinn er í gangi?
Komdu þér út!!
Ef einhver ætlar að halda áfram að sverta Hafralónsættina með þessum hætti, þá er ég farinn. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ó. Ég hélt útfrá titlinum að það væri verið að ræða dómsmálaráðherra. Mæ bad. Læðist út aftur
Nú sýnist mér vera þörf á að kalla Enter til og fá hann til að hirta þann sem er hér að sverta Herbjörn gamla... fyrir þann kjána sem heldur að hann komist upp með þetta, þá skal það kunngjört að við hvert innlegg skráist niður IP tala þess sem hér er að verki og það ætti að vera auðvelt að sannfæra Enter um að útiloka þann - Endanlega - ef hann hættir ekki þessu rugli...