Hver vill? Ég hef ekkert með hana að gera.
Hvað fæ ég í staðinn? Brjóstmynd af Ernest Borgnine? Heildarsafn Páfans af verkum Barbara Streisand? 3G síma Júdasar? Það verður að vera eitthvað veglegt og yfirgengilegt með eindæmum!
Ræskir sig
Hvernig væri nú að Goggurinn fengi að bjóða í sína eigin sál?
Allt er vænt sem vel er grænt.
Ljómar upp
Hnuss.
Áttar sig á því að sviðsnotkunin gerir síðuna enn grænari, hættir snarlega við að nota svið
Sál Goggsins. Ég trúi að það sé álíka gripur og samviska Pol Pots eða Hitlers. Engin veit hvort skrapatólið virkar, því það hefur aldrei verið notað.
En síðan er falleg!
Þarna vann Gunnþór mikið níðingsverk á síðunni fagurgrænu........Brestur í óstöðvandi grát
Hnuss.
Áttar sig á því að sviðsnotkunin gerir síðuna enn grænari, hættir snarlega við að nota svið
Þú átt að segja grænni!
Borðar svið
Fyrst vil ég byrja á því að ljóma upp vegna endurkomu Vamban.
Ljómar upp vegna endurkomu Vamban
En já, það væri nú gaman að fá sálina sína til baka, við höfum verið aðskilin of lengi. Svo grunar mig að hún fari vel við sólgleraugun mín.
Hvað segirðu um að skila henni? Næsti Admiral, kóbaltbættur eins og þú sérstaklega vilt, bíður þín næst á barnum
Mér myndi nú leiðast að taka upp skæruliðastarfsemi...
Fyrst vil ég byrja á því að ljóma upp vegna endurkomu Vamban.
Ljómar upp vegna endurkomu Vamban
Til Gráts og gnýstan skýja: Það er ekki viðeigandi að beygja þetta orð rétt.
En Goggur: Hví heiðrar þú ekki heðursmanninn Vamban með eignarfalli?

Hvað er heðursmaður?

Gjóir augunum yfirlætislega að hinum annars ágæta Günther Hér er ég að heiðra heiðursmanninn Vamban með eignarfalli. Að hans eigin ósk er Vamban eins í öllum föllum. Ef minnið er ekki að bregðast mér...
Rétt er það. Vamban skal það vera hvernig sem með það er farið.
En hvað sálina varðar þá vil ég eitthvað í staðinn. Kannski auglýsingu fyrir Admiral á tunglið? Það væri ekki verra.