Jæja, hver vinnur núna? Langar einhvern að gefa verðlaun?
hættiði að tala um þessa ömurlegu sumarlokun.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Hvunær skellur þetta á?
Kannski það ætti líka hafa veðmál um það?
Núna þegar ekki er komið svar við síðustu fyrirspurn Billa, myndi ég segja 2. júní á hádegi.
Ég segi 3. Júní eftir hádegi. Þá færum við okkur á www.kaffiblutur.com
Hvert orð fer að verða það síðasta.
Hvert orð fer að verða það síðasta.
Það fer eftir því hvenær sumarlokunin verður. Enn hefur ritstjórn bara tilkynnt sumarlokun en eigi tímasetningu og þykir oss það nokkuð einkennilegt.
Ég segi að þeir loki þann 25. ágúst og opni aftur 30. ágúst. Missir sig í draumórum
Verði ég kominn með vinnu fyrir haustopnun þá lofa ég koníaksflösku til handa þeim sem vinnur. Verði ég ekki kominn með vinnu þá verður enginn vinningur!
Ég lofa hreint bara ekki neinu hvort sem hér verður opið eða lokað.
En ég drekk ekki koníak.
Ég segi að þeir loki þann 25. ágúst og opni aftur 30. ágúst. Missir sig í draumórum
Á sama árinu ? Hrökklast afturábak og hrasar við
Þeir loka 7:43 í fyrramál.......
Þakka þeim sem hlýddu, Góðar stundir.
Stopp! Ekki setja innlegg hér á eftir!
Ég drekk koníak. Og Ívar getur ábyggilega fengið vinnu hjá mér við eitthvert smotterí hálfan dag eða svo, og fengið borgað með koníaksflösku SEM ÉG FÆ SVO Í VERÐLAUN.
Sko, ég vil rommflösku.
Ég á fulla, stóra rommflösku. Ljómar upp