Bráðum koma blessuð jól.
Brennur hátt á himni sól.
Baggalúts er bölvað gól.
Billi skrýðist rauðum kjól.
Þetta er nú öfugmæli.
Þetta er nú öfugmæli.
Ey ég þarf að fara á hæli.
Þetta er nú öfugmæli.
Ey ég þarf að fara á hæli.
Billi geymist best í kæli. (umdeilanleg öfugmæli, vissulega)
Þetta er nú öfugmæli.
Ey ég þarf að fara á hæli.
Billi geymist best í kæli.
Með Billa appelsínu skræli.
Í hlákunni ég fastur frýs.
Framhaldslíf ég aldrei kýs.
Vísundarnir veiða mýs.
Í hlákunni ég fastur frýs.
Framhaldslíf ég aldrei kýs.
Vísundarnir veiða mýs.
Voða slæmt var gamla SÍS.
Asahláka oft er þurr.
Asahláka oft er þurr.
Aldrey segja strákar burr.
Asahláka oft er þurr.
Aldrey segja strákar burr.
Um ypsilon er kominn kurr.
Asahláka oft er þurr.
Aldrey segja strákar burr.
Um ypsilon er kominn kurr.
Hvæs er raunar sama og urr.
Urðarkött í svip ég sá.
Sjallana nú allir dá.
Urðarkött í svip ég sá.
Sjallana nú allir dá.
Skíran skjöld mun Bjarni fá.
Urðarkött í svip ég sá.
Sjallana nú allir dá.
Skíran, Bjarni, skjöld mun fá.
Skuldleysi er hægt að ná.