Hræðilegar fréttir hafa borist!
Sjá: http://www.news.com.au/heraldsun/story/0,21985,23696213-23109,00.html
Þeir er íklæðast karmannlegum hárkollum fækkar stöðugt, nú síðast í því vígi er ég taldi tryggast, brezkir dómarar.
Brestur í óstöðvandi grát
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Heimur versnandi fer.
Hræðilegar fréttir hafa borist!
Sjá: http://www.news.com.au/heraldsun/story/0,21985,23696213-23109,00.html
Þeir er íklæðast karmannlegum hárkollum fækkar stöðugt, nú síðast í því vígi er ég taldi tryggast, brezkir dómarar.
Brestur í óstöðvandi grát
Hvers konar málfar er þetta eiginlega?
Það er ágæt spurning.
Ætli þetta hendi ekki þegar hafist er handa á setningu hugsaðri á einn veg, en lokið við sömu setningu eftir að hafa skipt um skoðun á uppbyggingu hennar. Þá getur hvað sem er gerst. Nema þetta sé dæmi um þágufallssýkisfóbíu, það er einnig mögulegt.
Þess vegna á maður alltaf að lesa yfir áður en maður þrýstir á senda. Alltaf
Við þetta vil ég því einu bæta að ég var í miklu sjokki þegar þetta var ritað, og í slíku ástandi gleymi ég alltaf hvaða falli sögnin fækka stýrir.
Hvað næst? Skipta Beef-eaterarnir núna bráðum yfir í latexgalla og ennisband til að tolla í "tískunni"? verður skelfingu lostinn
Hugsar um hugleiðingar hvurslags Það væri nú gaman að fá mynd af sér með svoleiðis fígúru.
Hrökklast afturábak og hrasar við
Þetta er með ólíkindum. Hvað næst ? Ætli verði tekin upp hægri umferð þarna líka ?
Þó má minna á að um var að ræða frjett falsmiðils. Gæti hún því sem best verið uppspuni frá rótum.
Vladimir mælir röddu skynseminnar. Við vonum að hér sé um lygi og áróður að ræða.
Það er ágæt spurning.
Ætli þetta hendi ekki þegar hafist er handa á setningu hugsaðri á einn veg, en lokið við sömu setningu eftir að hafa skipt um skoðun á uppbyggingu hennar. Þá getur hvað sem er gerst. Nema þetta sé dæmi um þágufallssýkisfóbíu, það er einnig mögulegt.
Þess vegna á maður alltaf að lesa yfir áður en maður þrýstir á senda. Alltaf
Já, alltaf. Það væri nú til dæmis ansi pínlegt að gleyma að setja punkt í lok innleggsins síns. Glottir prakkaralega