Getur einhver hérna sagt mér svona um það bil hvað það eru margir kílómetrar að keyra á Reyðarfjörð norðurleiðina, og hvað það eru margir km suðurleiðina?
(Það dugir líka að segja mér ef einhver veit t.d. vegalengdina báðar leiðir á Egilstaði eða aðra nálæga bæi)
Það eru rúmir 700 km hvora leiðina sem þú ferð.
Reyðarfjörður - Reykjavík - Reyðarfjörður
595 Hellisheiði, Skeið, Þjórsárdalur, Sprengisandur, Ódáðahraun, Fiskidalsháls, Fagridalur
631 Hellisheiði, Skeiðarársandur, Öxi, Þórdalsheiði
677 Hellisheiði, Skeiðarársandur, Sunnfirðir, Fáskrúðsfjarðargöng
687 Hvalfjarðargöng, Borgarfjarðarbrú, Holtavörðuheiði, Vatnsskarð, Öxnadalsheiði, Víkurskarð, Háreksstaðir, Fagridalur
729 Hellisheiði, Skeiðarársandur, Breiðdalsheiði, Fagridalur
797 Hvalfjarðargöng, Borgarfjarðarbrú, Holtavörðuheiði, Vatnsskarð, Öxnadalsheiði, Víkurskarð, Háreksstaðir, Breiðdalsheiði, Sunnfirðir, Fáskrúðsfjarðargöng
Kílómetrarnir eru feitletraðir.
Ok flott. Þá ætti þetta að reddast. Takk!
Ertu að fara að vinna á Reyðarfirði í sumar Tigra?
Veit það ekki enn fyrir víst, en það gæti stefnt í það já.
Álkisi. Ættir að geta smíðað alvöru Battlecat búning úr áli.Glottir eins og fífl
En það er ekki símasambans á Reyðarfirði. Og engin sjónvörp og engir bílar. Þetta er eins mikið sveitó og hægt er. Hrökklast aftur á bak og hrasar viðStyður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Með "sveitó" áttu væntanlega við "frábært", þú færir ekki að nota "sveitó" í niðrandi merkingu, er það?
Með "sveitó" áttu væntanlega við "frábært", þú færir ekki að nota "sveitó" í niðrandi merkingu, er það?
Nei B.Ewing notar örugglega ekki orðið sveitó í niðrandi merkingu, það er eitthvað svo 80´ís!
Sveitó í dag merkir forréttindi. Það að eiga hús og heimili uant þéttbýlis í dag eru forréttindi sem því miður ekki allir fá að njóta.
Pilturinn: Getið þér selt mér einn metra af pylsum?
Slátrarinn: Hér seljum við pylsur í kílóatali, ekki metratali!
Pilturinn: Getið þér þér þá selt mér einn kílómetra af pylsum?
Þessi ágæta skrýtla var í barnablaðinu Æskunni þegar ég var barn. Þetta var fjarskalega vont blað, ár eftir ár. Skrýtlur á borð við þessa voru sennilega einna skásta efnið.
Heiti þráðarins minnti mig á þetta og biðst ég velvirðingar á þessum útúrdúr frá landmælingaumræðu þeirri ágætri sem hér fer fram.
Með "sveitó" áttu væntanlega við "frábært", þú færir ekki að nota "sveitó" í niðrandi merkingu, er það?
Nei B.Ewing notar örugglega ekki orðið sveitó í niðrandi merkingu, það er eitthvað svo 80´ís!
Sveitó í dag merkir forréttindi. Það að eiga hús og heimili uant þéttbýlis í dag eru forréttindi sem því miður ekki allir fá að njóta.
Svona villa er einmitt svakalega sveitó.

Mér finnst þessi villa ekkert frábær.

Sveitó sem ég er stolt af.
Auðvitað átti þetta að vera utan þéttbýlis. Ef þið getið ekki unnt mér lesblinduna, þá þið um það.
Þið verðið hvorki meir né minni menn fyrir vikið.
Kílometrarnir eru svipaðir báðr leiðir. oftar fer ég norðurleiðina því þar eru vegirnir betri. Suðurleiðin er seinfarnari en síður ófær að vetri til. Tekurðu þann kjaftstóra með þér?
Hér má lesa um langan kílómetra í boði Helga Hálfdánarsonar.
Nei! og ekki tókst það. *Eg hef verið að reyna að senda ykkur linkinn á kílómetratal Helga.
En gefst bara upp á því. Þið finnið boðskapinn bara einhvern veginn sjálf.
Dæsir mæðulega, lítur út um gluggann og sér vonleysis sortann í aðsigi
Jæja! Hér er linkurinn í fullri lengd.
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?p=841878#841878
Mér er eitthvað svo mikið í mun að þið lesið þetta og fræðist.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Njótið þess að lesa og fræðast!