Til hamingju Regína mín.Ljómar upp Þannig að ef Vlad fellur frá þá verð ég forsetafrúin þínGlottir eins og fífl
Lesbíur?
Nær í ilmsöltin fyrir Enter, lofað sé nafn Hans
Hugsar meira um stöðuveitingarnar (undir áhrifum áfengis) Ætli það sé samt ekki gáfulegra, ef tekið er tillit til óvina ríkinsins og þeirra krafts til að láta fólk hverfa, að hafa bæði varaforseta og varaforsetafrú? Svona ef í harðbakkann slær? Skáldið sagði jú að öryggið skuli sett á oddinn.
Þá verður maður að spyrja... hver er orginal?
Skiptir það einhvurju máli varðandi forsetann og klónin hans? Það vita allir að forsetahjónin eru bara upp á punt.
Ertu nú ekki eitthvað að ruglast á baggalútíska heimsveldinu og íslenska puntlýðveldinu?
Hugsar meira um stöðuveitingarnar (undir áhrifum áfengis) Ætli það sé samt ekki gáfulegra, ef tekið er tillit til óvina ríkinsins og þeirra krafts til að láta fólk hverfa, að hafa bæði varaforseta og varaforsetafrú? Svona ef í harðbakkann slær? Skáldið sagði jú að öryggið skuli sett á oddinn.
Ertu að bjóðast til að vera varaforsetafrú?
Já.
Skyldi það embætti vera veitt af mér eða forsetanum?
Skyldi það embætti vera veitt af mér eða forsetanum?
Þú hlýtur nú eiginlega að fá að ráða því. Klórar sér í höfðinu
Skyldi það embætti vera veitt af mér eða forsetanum?
Þú hlýtur nú eiginlega að fá að ráða því. Klórar sér í höfðinu
Já, satt segirðu, og ekki fer forseti vor að neita Gogginum um þetta.
Hrökklast afturábak og hrasar við
Vjer vekjum hjer með formlega athygli á að erindi Goggsins er eigi fram sett með ótvíræðum hætti þar eð honum (henni ?) hefur láðst að geta þess hvort um sje að ræða frú sem er til vara fyrir forsetafrú eða hvort um er að ræða frú sem 'tilheyrir' varaforsetanum.
Bíður spennt eftir að vita hvað Goggurinn meinti
Það sem ég meinti var að ég yrði varaforsetaherra, þar sem varaforsetinn er jú víst kvenkyns. Ef varaforseti vor verður að einhverju móti forseti, er ómögulegt að forsetinn (forsetan?) hafi forsetafrú upp á arminn.
Ég er hræddur um að skortur á blóði í áfengisrásum mínum hefur gert fyrirspurn mína illskiljanlega.
Virðir Gogginn fyrir sér.
Minnir endilega að þetta sé ósköp hlýleg sál og vitur, og því örugglega góður ráðgjafi.
Ljómar upp
Flott sólgleraugu! Þú mátt alveg vera varaforsetaherrann minn.
Ljómar upp Ji hvað þið eruð ofboðslega sæt samanGefur frá sér vellíðunarstunu
Það tilkynnist hjer með opinberlega að brátt verður ráðherra- og embættismannalistanum breytt með formlegum hætti þannig að breytingar þær er hjer hafa átt sjer stað komi þar fram. Staða Goggsins er orðin ljós ef vjer skiljum nokkur undanfarin innlegg rjett.
Hvað gerist annars ef Mosa frænka birtist? Hún kom við síðast í janúar.
Fægir hlerunarbúnaðinn og gengur frá hjá gljáfægðum skörungnum
Hrökklast afturábak og hrasar við
Það skapar viss vandamál en yrði það í einhvern tíma að ráði yrði hún væntanlega forsetafrú á ný. Þó óttumst vjer að annaðhvort hafi henni verið rænt af óvinum ríkisins eða þá að annir hennar við baráttu gegn óvinum ríkisins sjeu svo miklar að hún muni eigi sjást mjög mikið hjer.
Jæja, er ekki kominn tími á að þið þarna í forsetaembættinu klæðið ykkur?