Það tilkynnist hjer með opinberlega að öryggisúttekt hefur leitt í ljós að öryggi baggalútíska ríkisins er of ótryggt sökum aðgerða óvina ríkisins. Svona lítur forsetaembættið út:
Vladimir Fuckov: Forseti
Mosa frænka: Forsetafrú. Hefur verið í leynilegum aðgerðum gegn óvinum ríkisins en virðist horfin. E.t.v. rænt af óvinum ríkisins.
-- Sloppur yfirbílstjóri
-- Dr. Gottfriedsen forsetabílstjóri. Fyrir löngu horfinn, hlýtur að hafa verið rænt af óvinum ríkisins.
-- Skabbi skrumari yfirbruggari og forstjóri Áfengis og tóbaksverslunar Baggalútíu (ÁTVB)
-- Hvæsi yfirmatreiðslumeistari baggalútíska heimsveldisins og forsetaembættis Baggalútíu
-- Vamban yfirsmakkari. Of sjaldsjeður, e.t.v. í haldi óvina ríkisins núna
-- Hilmar harðjaxl yfirlífvörður. Fyrir löngu horfinn, hlýtur að hafa verið rænt af óvinum ríkisins.
-- hundinginn lífvörður. Of sjaldsjeður, e.t.v. í haldi óvina ríkisins núna
-- Knopfler lífvörður. Fyrir löngu horfinn, hlýtur að hafa verið rænt af óvinum ríkisins.
Meirihluti þeirra er embættinu tengjast er að því er virðist í haldi óvina ríkisins og/eða horfinn af óþekktum orsökum. Þarf því að ráða í fjölmörg embætti, auk þess er full ástæða til fjölgunar embætta frá því er hjer kemur fram. Um tímabundna setningu í viðkomandi embætti kann að verða að ræða, a.m.k. í bili, enda gætu einhverjir þeirra er horfið hafa birst aftur.
Svo kann að koma til greina að skipa varaforseta (sbr. að til staðar var varakeisari og varakonungur). Litið hefur verið á embætti forsetafrúar Baggalútíu sem ígildi þessa embættis en óvíst er að það sje hentugt fyrirkomulag.
Því eru fjölmörg embætti við forsetaembætti Baggalútíu hjer með formlega laus til umsóknar Býr sig undir að taka við mú..., gjöfum frá íbúum Baggalútíu
Ég get verið lífvörður. Beinir marghleypunni upp í loft og hleypir þrisvar af
Hvar sæki ég um?
JARMI KÓNGUR!
Sveiflar gengjamerkjum og böstar kapp
Ég get verið lífvörður. Beinir marghleypunni upp í loft og hleypir þrisvar af
Hvar sæki ég um?
Í þessum þræði. Þjer eruð hjer með ráðnir. Vjer teljum nefnilega nánast útilokað að óvinum ríkisins takist að ræna yður Ljómar upp.
Ég hef lengi haft augastað á embættinu forsetafrú, og sæki hér með um það.
Bíður eftir hvort fleiri umsækjendur verði um embættið, viðbúin því að toppa allar mú.. gjafir annarra umsækjenda.
Ég sæki um embætti forsetabílstjóra!
Ég get verið lífvörður. Beinir marghleypunni upp í loft og hleypir þrisvar af
Hvar sæki ég um?
Í þessum þræði. Þjer eruð hjer með ráðnir. Vjer teljum nefnilega nánast útilokað að óvinum ríkisins takist að ræna yður Ljómar upp.
Stekkur upp á Blesa (nýbónaðan) og stillir sér upp hringinn í kringum forsetann Nú er ég orðinn riddaralið!
Ég sæki hér með um stöðu í varaliði lífvarðarins. Þýðir það annars ekki launaseðill og engin vinna?
Eftir flóttann mikla frá hinum ímyndaða Ísafirði hef ég lítið að gera. Lfvarðastaða hljómar assgoti æskilega.
Forsetar eru ekki með hirð, fífl.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Vantar háttvirtan forseta ekki einhverskonar ímyndarráðgjafa. Einhvern svona PR mann til að sporna við þeim sögusögnum að forseti vor sé krútt? Ég myndi bjóða mig fram í svoleiðis embætti. Þá t.d. þegar svona tal færi af stað þá gæti ég dregið að mér athyglina með því að vera meira ætlað krútt heldur en forsetinn.
Jú, þetta er algjörlega nauðsynlegt, að hafa PR mann og jafnvel áróðursmeistara Ljómar upp. Þjer eru hjer með formlega ráðnir.
Varaforseti segirðu. Já, ég er sammála því að það vantar varaforseta. Ef hið óhugsandi skyldi gerast, að þér yrði rænt af óvinum ríkisins, Vladimir, þá verður einhver að vera tilbúinn á rauðu hnöppum forsetahallarinnar. Tel ég mig vera góðan kost þar sem reynsla mín gegn óvinum ríkisins er gríðarmikil. Ef þurfa þykir get ég hætt að nota staf hins illa og tekið upp almennar þéringar. Sendir illa fengnar spillingarmútur á reikning Vladimirs á Cayman-eyjum
Fleiri embætti eru betri en færri, við getum alltaf hækkað einhverja skatta til að borga undir okkur. Ljómar upp
Ég gæti hugsað mér að bæta við mig embætti, sé nokkurt áhugavert laust til umsóknar, t.d. við vörzlu Fjársjóðskammers forseta vors.
Færir forsetanum ígildi margra ára Eyrasundtolls í ríxdölum, nokkrar eyjar í Karabíahafinu og Flateyjarbók