Mér fannst ég bara verða að sýna ykkur að fjármunum þessa embættis er ekki verr varið en í öðrum embættum.
Sýpur á ískaldri kóbaltmjólk
sýpur hveljur Þrjár hæðir! Hvurs kyns fjandans bruðl er þetta? Ekki nema von að últrakóbaltbætandi brunnkerfi Skabba skuli vera í fjársvelti. hnussar af alefli
Fökk! Er þetta ekki það allra nýjasta frá Lely? ÜberMilkMrRoboto 2000x! Það er aldeilis hlaðið undir ykkur mjaltakellingarnar. froðufellir af æsingi
Horfir öfundaraugum á marmarafjósið Svo fæ ég ekki einu sinni að panta argentínska steypu í sökkulinn fyrir mitt gæluverkefni... hvað þá sérsmíðaða borinn frá Japan...
Er ég orðin blind ? Ég sé ekki það sama og þiðpússar glyrnurnar
Nei heyrðu mig nú gamli sveitavargur! Þetta er nornakofinn minn í hlíðum Vesúvíusar, þú hefur stolið honum óbermið þitt! Og ég sem ætlaði að nota hann sem sumardvalarstað fyrir Draumþrúði ömmu, hún er orðin svo slæm af gigtinni og þarf að komast í heitara loftslag. Svei þér!
Ertu að kalla þetta kofa? Móðgast
Amma þín getur mallað kakó ofan í Geir Ólafs einvhers staðar annars staðar, ég þessa höll!
Sú gamla getur svo sem verið í kofanum og hellt uppá á morgnana og svoleiðis.
Hún amma mín mallar ekki kakó, það er ég sem geri það. Og fyrr myndi Skabbi hætta að taka í nefið, Vlad að hætta að hugsa um tímavjelar og Hakuchi hætta að sveifla katanasverðinu heldur en ég færi að gefa Gei... þarna ... þú veist... að smakka á kakóinu mínu!
Sem fjármálaráðherra Baggalútíu er mér ljúft og skylt að veita einhverjum fjárhæðum í viðhald á skrifstofu fjósameistara, óski hann eftir því. Mér sýnist til dæmis full þörf á að endurnýja þakskífur skrifstofunnar.
Ég þakka góðvildina herra, en ég nenni ómögulega að standa í því að skipta um þakskífur.
Ég þakka góðvildina herra, en ég nenni ómögulega að standa í því að skipta um þakskífur.
Jæja, þú notar fjárveitinguna þá bara í eitthvað annað þarflegt. Setur skrifstofu fjósameistara á fjárlög
Það er nú einhver afgangur af fjárlögunum fyrir byggingu utanríkismálaráðuneytishallarinnar, ég gæti alveg lánað þér ef þú vilt, útvarpsstjóri góður.
Hérna er t.d. ein hugmynd sem mér fannst of rómantísk fyrir höllina, en hún gæti hentað þér;
Fyssandi áin væri að sjálfsögðu hrein mjólk. Ég sé fyrir mér að staðsetja bygginguna í botni Hvalfjarðar, en það er samt auðvitað alveg opið. Hvað finnst þér?
Hvalfjarðarbotn tel ég afar óheppilegan stað fyrir kúabú, en Borgarfjörður er ákjósanlegur staður.
Hvalfjarðarbotn tel ég afar óheppilegan stað fyrir kúabú, en Borgarfjörður er ákjósanlegur staður.
Það eina sem Borgarfjörður getur hugsanlega verið ákjósanlegur fyrir væri brottfluttningur.Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri