Velkomin í kastala nefndarmálaráðuneytisins, heimili hins sístækkandi skrifræðisbálkns! Hér getið þið djammað og djúsað í álmu kynningardeildarinnar eða kynnt ykkur ýmis nefndar- eða skrifræðistengd málefni.
Ég er sjaldnast hér til viðtals, en það er hægt að skilja eftir skilaboð hjá einhverjum af skrifstofunum mínum hér og þar í komplexinu.
læðist út
Vjer gerum þá ráð fyrir að 97% af þeim 97% kastalans sem eru neðanjarðar sjeu skjala- og eyðublaðageymslur ? Ljómar upp
Laumar Bjargmundi frá Keppum inn aftur og setur hann inn á skrifstofuna sína.
Vjer gerum þá ráð fyrir að 97% af þeim 97% kastalans sem eru neðanjarðar sjeu skjala- og eyðublaðageymslur ? Ljómar upp
Ekki alveg, ég hugsa að það sé aðeins um fjórðungur af plássinu sem fer í það. Við reynum að hafa sem mest á pappír þar sem að tölvum er illa treystandi fyrir öðru eins magni af upplýsingum. Stór hluti af komplexinu eru einnig þúsundir fundarherbergja og ráðstefnusala, því að flestar nefndir þurfa að funda 24/7 allan ársins hring. Fjölmargir hlutir sem krafist er í daglegum rekstri skrifræðisbálkns þarf einnig að vera til staðar, svosem bakkelsisverksmiðja og kaffirækt og -vinnsla. Svo er einnig fullt af öðru dóti þarna sem krefst pláss en ég vil helst ekki ræða það hér af öryggisástæðum.
Ég vil þó nota tækifærið og benda á að háttvirtur forseti gæti verið að ruglast á okkur og upplýsingamálaráðuneytinu, en sú stofnun hefur verið nánast óvirk eftir því sem ég veit. Ég legg til að þú, sem formlegur yfirmaður ríkisstjórnarinnar, hnykkir í þann sem er upplýsingamálaráðherra svo við getum undireins byrjað að eyða meiri peningum í stofnunina. Það myndi líka létta starf nefndarmálaráðuneytisins og því vel virði peninganna.
Er ekki vissara að leggja málið í nefnd?