http://www.youtube.com/watch?v=hHybxGEcbZY
Perfect day með Hoku...
Nýr tónlistar leikur. Nýtt lag á hverri blaðsíðu og gestapóar segja frá tilfiningum sínum þegar þeir hlusta á lagið. Einnig hvað þeim finnst um eftirfarandi lag. Ég byrja kannski með full stelpulegu lagi.
En mér finnst eins og allar áhyggjur heimsins hverfi þegar ég hlusta á þetta ágæta lag.
(það verður að fylgja linkur þar sem hægt er að hlusta á lagið)
Ég fyllist merkilegri blöndu af aulahrolli, uppsölulöngun og nístandi ótta.
Drífur sig að finna móteitur eftir Tom Waits
Blöndu af aulahrolli og gleði
Hvað með þetta?
http://www.youtube.com/watch?v=JKKNBUMy0II
Mér finnst lagið, sem Aulinn býður okkur að hlusta á svo sem allt í lagi. Það höfðar örugglega til unglingsstúlkna og þaðan af yngri. Ég myndi þó aldrei fjárfesta í plötu með þessari söngkonu og það er langur vegur frá þessu Perfect Day lagi til samnenfnds lags með Lou Reed.
Ég get ekki annað sagt en að þú sért að hálfeyðileggja góða hugmynd að þræði með fyrsta innlegginu. Þetta er klysjukennt og týpískt amerískt píkupopp fyrir stelpur sem nenna ekki að pæla í tónlist og ákveða frekar að láta mata sig af verksmiðjuframleiddu sykurpoppi. Það er ekki einu sinni hægt að dansa við þetta.
Voða krúttlegt samt alltsaman.
Viðbót: Myndbandið hans Grágríms er yndislegt.
PS. Myndband fyrir indíkrúttin (pínu gallað samt...) - Hér Betra....
Ég fylltist einhverskonar óskilgreindri vanlíðan við að horfa á þetta myndband. Kvíðahnútur stækkaði í maga mér og hendurnar urðu þvalar. Ég hætti að horfa og þá lagaðist ástandið nokkuð en samt gat ég ekki hlustað nema inni í rúmlega hálft lag. Þetta þykir mér ekki góð né skemmtileg tónlist.
Mér lá við uppsölum að hlusta á þessa stelpusveit!
Oss tókst með naumindum að forðast að Hrökklast illilega afturábak og hrasa við. Lou Reed er margfalt betri.
Má ekki bara koma með næsta lag strax eða neyðumst við til þess að eyða heilli blaðsíðu í það að drulla yfir þetta lag?
Mér líður eins og ég þurfi að fara í Kringluna og kaupa mér eitthvað bleikt.
Ég fæ bara einhvern undarlegan fiðring í kringum my special area.
Má ekki bara koma með næsta lag strax eða neyðumst við til þess að eyða heilli blaðsíðu í það að drulla yfir þetta lag?
Þegiðu druslan þín. Það er allt í lagi að bera skoðanir sínar en í enn betra lagi að bera virðingar fyrir smekk annara. Mér er alveg sama hvað þér finnst.
Hættu svo að rembast við að vera svona menningalegur í sambandi við tónlist. Þú drullar bara á þig með því.
Ég varð pínulítið dofinn í smástund, eftir það var þetta æðislegt. Mjög gott lag og ég er alveg að fíla textann. Þetta lag er einnig orðið hringitónn hjá mér Ljómar upp Mig langar að þakka Aulanum fyrir að velja þetta lag. Og gott ef ég fann ekki eitthvað svipað og Dinesen...
Ég varð pínulítið dofinn í smástund, eftir það var þetta æðislegt. Mjög gott lag og ég er alveg að fíla textann. Þetta lag er einnig orðið hringitónn hjá mér Ljómar upp Mig langar að þakka Aulanum fyrir að velja þetta lag. Og gott ef ég fann ekki eitthvað svipað og Dinesen...
grunar albin um að vera orðin ofurölvi eða komin á LSD Ég fékk bara svona þið vitið, ljóshærða tilfinningu.
Það er allt í lagi að bera skoðanir sínar en í enn betra lagi að bera virðingar fyrir smekk annara. Mér er alveg sama hvað þér finnst.
Skemmtilegt.
Ég þori ekki fyrir mitt litla líf að hlusta á þetta lag eftir útreiðina sem það fær hér. Næsta innlegg verður það síðasta á þessari síðu svo það styttist í næsta lag.
Söngkonan er sæt en þetta er viðbjóðslegt lag.