Hérna er skemmtileg rímæfing, stolin úr vísnaþætti DV frá árinu 2002 (sem Ragnar Ingi Aðalsteinsson var með), svo ég skrifi orðrétt upp úr þeim þætti:
Þessi háttur samanstendur af tveimur braglínum sem stuðla saman á venjulegan hátt. Hins vegar er rímið harla óvenjulegt. Það hefur hlotið nafnið skiptirím og felst í því að orðin sem ríma skiptast á upphafsstöfunum. Þannig yrði músin sem læðist lúsin sem mæðist og skiptirím verður riftiskím
-
Sumir stuðla hvora braglínuna fyrir sig, þá er ekki höfuðstafur í seinni línunni heldur koma þar nýjir stuðlar.
Dæmi:
Mun ég ávallt mæra glasið
Þá kemur gjarnan glæra masið.
Reiddi ég fram rauða dollu,
dró úr henni dauða rollu.
tóbak bannað tekur rettu
slekkur í og vekur Mettu
Starir þegjandi út í loftið
[Fyrir utan að það þarf að stuðla, þá hefði rímið þurft að enda á rekur tettu til að passa.. Skabbi]
Alltaf vill hún Anna Björk
barnanafnið banna Örk.
Í hraðleið 4 Hagar - Sund,
Sadistast og sagar hund.
Heldur að þetta sé í lagi en nennir ekki að tékka á því