Þúsundþula
Í þennann þráð skal yrkja tvær línur með karl eða kvenrími og efnið skal hanga vel saman. Ekki má senda tvö innlegg hvert á eftir öðru nema 12 klst. líði á milli. Annars má senda eins mörg og maður kýs.
Þúsund línur skal þulan verða, það er 500 innlegg.
Hér eru dæmi um hvernig svona gæti gengið:
Innlegg 1:
Eitt sinn reis í einum grænum
okkar land úr blautum sænum.
Innlegg 2:
Ingó sigldi óðar þangað
eins og frú hans hafði langað.
Innlegg 3:
Allan kvóta eins og skot
eignuðust og byggðu slot.
Ekki víkja frá þessum bragarhætti. Hver vill byrja? Efnisval er frjálst, enda auðvelt að sveigja það síðar til.
Dæmin hér að ofan eru ekki innlegg í þuluna.
Best að byrja þá bara sjálfur:
Óð um risaeðlu' á sveimi
orti fyrsta skáld í heimi.
Risaeðlan réðst á hana,
rösk hún varðist sínum bana.
Sér til varnar hnullung henti,
í hægra auga skrímslis lenti.
Svo að alveg út í bláinn
eðlustofninn nú er dáinn.
Sagan lærðist munn af munni,
miðla orði skáldið kunni.
Orti reyndar eftir þetta
aðeins þjóðsöng fyrir Letta.
Fleira skáldið færði okkur,
fræðirit og leikrit nokkur.
Eitt það var þó vísnagrey
sem vinur okkar samdi ei:
Það var "diggiliggilá
ljósastaurar grindverk þrá."
Víkjum enn að vini okkar,
vísur skáldið fram nú lokkar.
Ljóðagerð er lista mest,
leirskáld vita það nú best.
Gekk hún út á græna tó,
glitti þar í smiðjumó.
Flottan reif upp feiknahníf,
fugla skar það ljóðavíf.
Gaukur átti aldrei þó
ástargras að setja í skó.
Enda var hann Gaukur greyið
gagnslaus við að þurrka heyið.