Miðað við núgildandi talningu á innleggjum Gestapóa telst þetta innlegg vera númer 25000 frá mér.
Ég hef því ákveðið að stofna hér klúbb fyrir þá, sem hafa náð sama áfanga, þ.e. 25000 innleggjum.
Hitt er svo annað mál að ef ég smelli á Finna öll innlegg hjá mér, sé ég að þau spanna 1976 blaðsíður. Ef reiknað er með 18 innlegggjum að meðaltali á hverri síðu, reiknast mér til að á þeim fjórum árum, sjö mánuðum og 17 dögum, sem liðnir eru frá fæðingu minni hér, hafi ég gjammað nærri 36000 sinnum. En það er nú önnur saga.
Þess má einnig geta að fyrir margt löngu var stofnaður hér á sama svæði s.k. 10000 klúbbur.
Þakka þér Kargur, en þá mátt ekki gleyma öllum gáfulegu innleggjunum mínum og vísunum. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Klórar sér í höfðinu Ertu að gefa í skyn að teningakast sé ekki gáfulegt?
Er nokkuð viðeigandi nema þettað:
Klórar sér í höfðinu Ertu að gefa í skyn að teningakast sé ekki gáfulegt?
Æ, jú auðvitað. Það vantaði þarna eitt orð, þetta átti auðvitað að vera öllum hinum gáfulegu innleggjunum.
Iss.. Snobbklúbbur fyrir spilafíkla.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Þú tekur kannski frá stól fyrir mig Herbjörn, mér reiknast til að ég uppfylli inngönguskilyrðin eftir rétt rúma tvo áratugi. hlakkar til
. Dula
• Félagsrit: 61 • Innlegg: 17738 • Skráning: 18/1/06 17:09
Ég kemst nú ekki með tærnar þangað.hrökklast út aftur
19. janúar 2005 var ég kominn með 2753 innlegg og reiknaði þá með að vera kominn í 10000 árið 2011.
Tekur frá stóla fyrir Dulu og Karg
* Fæðing hér: 6/9/04 12:47
* Síðast á ferli: 30/3/08 01:30
* Innlegg: 4368
Ef farin er sú leið að finna öll innlegg þá verða þau 7110 þannig að ég á laaaaangt í land með að ná þér Hebbi.
* Fæðing hér: 6/9/04 12:47
* Síðast á ferli: 30/3/08 01:30
* Innlegg: 4368
Ef farin er sú leið að finna öll innlegg þá verða þau 7110 þannig að ég á laaaaangt í land með að ná þér Hebbi.
Miðað við vaxandi áhuga þinn á teningakasti verður þetta komið fyrr en þig grunar. Ljómar upp
* Fæðing hér: 13/11/05 22:34
* Síðast á ferli: 30/3/08 01:40
* Innlegg: 774
Ég verð greinilega að spýta í lófana.
Starir þegjandi út í loftið
Úff Kargur, það hef ég ekki hugmynd um og þyrfti að leggjast í rannsóknarvinnu til að finna það út.
Fæðing hér: 24/9/05 16:56
Síðast á ferli: 30/3/08 17:51
Innlegg: 16252
Þetta er allt að koma. Spurning um að endurvekja 10.000 klúbbinn, já eða stofna 15.000 klúbb.......
Herbjörn minn ert þú ekki bara einn í þessum klúbb?
Íhugar að stofna annan eins manns klúbb um eitthvert málefni og stofna svo landssamtök eins manns klúbba