pirrast og glottir til Grágríms
Heimahjúkrunarkellingar sem ryðjast inn svo að þjófavarnarkerfið fer að æpa og góla.
Þvottaefnisauglýsingar sem reyna að telja fólki trú um að þvotturinn sé ekki hreinn þegar maður notar venjulegt þvottaefni því þá eru sko ennþá bakteríur á tauinu (og falin merking í öllu myndmáli að bakteríur séu stórhættulegar).
Litlar hallærislegar klappstýrur. Sem er samt lúmskt fyndið.
Alþingi.
Frekja og græðgi.
Akkúrat núna er kjáninn hér að ofan að pirra mig með því að minna mig á hina vanþróuðu nágranna mína á mýrunum.
Myndi jeg pirra þig enn meir með því að segja að allt væri betra sunnan Hvítár?
Það pirrar mig svolítið að þú skulir benda á hið augljósa; auðvitað er allt betra hér sunnan Hvítár.
Þú virðist hið minnsta vera vel staðsettur, og pirrar það mig eigi.
Að með alla þessa nútímatækni sem við höfum við fingurgómana skuli ekki enn vera búið að finna upp eitthvað sem skrifar ritgerðir fyrir mann. Dæsir mæðulega og snýr sér aftur að bókunum
Allt þetta fallega veður sem ég get ekki notið/að.