Síðasti bjórinn... eitthvað svo skelfilega tragískt við hann alltaf...
Seinasti dagurinn í helginni eða í fríi, það er einmitt svo leiðinlegt að þurfa aftur að fara í rútínuna.
Það pirrar mig hvað mér leiðist á gagnvarpinu. Búinn að lesa bók og læra 4 nýja hluti í dag. Það er slæmt þegar bækur standa sig betur en gagnvarpið.
Þegar enginn skilur mig. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Núna í augnablikinu aðallega sú staðreynd að vjer erum að donwloada stórri skrá og náum einungis um 20 KB/sek. download hraða fyrir þá tilteknu skrá Horfir óþolinmóður á töluna 54%.
Blóðnasir aftur og enn... Blótar herfilega og rífur í nasahár sín
Haltaloppa hórulöpp sem ég er í augnablikinu og nenni ei í skólann sökum tröppuvesens. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Þessi árans ólukka sem eltir mig núna. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Fólk sem velur að viðhalda eigin ranghugmyndum og fordómum sama hversu augljóst er að það hefur rangt fyrir sér.
Ósköp fátt nema helvítis snjórinn, alveg kominn með ógeð á honum og það byrjar að snjóa aftur.
Sýklar og bakteríur þær er hafa tekið sér, að því er virðist, varanlega bólfestu í líkama mínum hvar þær framleiða hor og slím af miklum móð með tilheyrandi hósta og hæsi.
Það sem virkilega pirrar mig er þegar eitthvað lið sem telur sig vera yfir manni og er helmingi yngra þykist geta samið reglurnar fyrir aðra og þarf ekki sjálft að haga sér eftir neinum settum eða sögðum reglum , jafnvel þó það séu eigin reglur.
Fáfræði pirrar mig.
Norðaustan 15 m/s, hiti --3°.