Gleðinlegt sumar.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hey, mar segir leiðinlegt með enni, akkuru er þá ekki líka enn í gleðinlegt?
Sú staðreynd að við þurfum að eyða þriðjungi ævi okkar í jafn gagnslausa iðju og svefn.
Ekkert! Lífið er dámsamlegt, blómin syngja ástarsöngva til rigningarinnar og ég verð blátt skrímsli á morgun!
Það pirrar mig þegar fólk segir hvað þá xxxx til áherslu en notar víðara/ómerkilegra hugtak til samanburðar í stað þrengra/merkilegra hugtaks.
Dæmi:
Ég hef nú aldrei drukkið átján lítra af vodka á einu kvöldi, hvað þá heilan bjór!
Ég myndi aldrei fara nakinn í bæinn, hvað þá að fara í almenningssturtuklefa.
Ég hef aldrei séð þríhöfða hest, hvað þá hest með tvö höfuð.
Sú staðreynd að bíllinn minn er uppi í Árbæ með sprungið dekk sem ekki virðist vera hægt að ná af með neinu móti.
Og bílar almennt.
Það sem pirrar mig allra mest í augnablikinu er drami, alltaf sami draminn hjá fólki.
Fólk sem setur auglýsingu í blað eða á netið og hefur svo slökkt á símanum með símanúmeirnu sem það gefur upp fer óskaplega í taugaranr á mér núna... líka þráðlausar internettengingar... sem detta alltaf út.
Annars er ég bara góður.
Það pirrar oss örlítið að ekki skuli fleiri hafa kosið svipað og vjer Glottir eins og fífl.
Z-stig, Normaldreifing, normdist, normvin, normsinv... eiginlega bara allur helvítis 8. kafli í stærðfræðibókinni minni.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Z-stig, Normaldreifing, normdist, normvin, normsinv... eiginlega bara allur helvítis 8. kafli í stærðfræðibókinni minni.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ælir örlítið
Z-stig, Normaldreifing, normdist, normvin, normsinv... eiginlega bara allur helvítis 8. kafli í stærðfræðibókinni minni.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ælir örlítið
Stærðfræði getur verið yndisleg. Sem "faðir" allra vísinda (eins og heimspekin er móðir allra vísinda) hefur hún komið mannkyninu mörgu til leiðar. ljómar upp Áfram stærðfræði!

Sparkar mjög vinalega og jákvætt í rassin á Hvurslags
Tekur undir með hvurslags (og býst við sparki)
Flest stærðfræði er af hinu illa. Allaveganna var algebran alveg að gera mig grænann á minni skólagöngu
En akkúrat núna er þetta déskotans veður að pirra mig. Rækallans belgingur!
Ef ekki kæmi til stærðfræði (og það af flóknari gerðinni) væri illmögulegt að vita með einhverri nákvæmni hvernig veður verður næstu daga - líklega hefði þá ekki verið vitað strax um sl. helgi að væntanlega yrði leiðindaveður og belgingur í dag Glottir eins og fífl.
Sendir inn formlega kvörtun undan rangri stillingu á veðurvjelinni og lætur veðrið pirra sig örlítið líka
Ekkert! Lífið er dámsamlegt, blómin syngja ástarsöngva til rigningarinnar og ég verð blátt skrímsli á morgun!
Hvað meinaðirðu? Blátt skrímsli? Kaustu sjálfstæðisflokkinn eða hvað?