Hér skal danska sjónvarpsþáttaröðin Matador rædd.
Ég vil hefja umræðuna á einni kenningu sem mér datt í hug (en veit ekki hvort ég sé fyrstur/eini sem hefur fengið þessa flugu í höfuðuð, máské er þetta á allra vitorði). Efni hennar spillir fyrir þeim sem ekki hefur séð þættina, en vill gjarnan sjá þá óspjallaður af upplýsingum.
Söguþráðurinn finnst mér bera ögn keim af dýrabæ eftir George Orwell. Þá er Varnæs fjölskyldan í hlutverki illu mannanna, og Mads Andersen Skjern (sem jú fjarlægir hið almúalega Andersen um ca. miðja þáttaröð úr nafni sínu) er svínin, sem koma í bæinn, byrjar á því að steypa yfirstéttarveldinu (Damernes Magasin) með því að stofna Skjerns Magasin, þar sem allar konur, óháð stétt geta keypt sér fatnað. En síðan breytist Skjern. Hann fær æ fleiri einkenni yfirstéttarinnar, og í lok þáttaraðarinnar er hann orðinn alveg eins, og samþykktur í þeirra hópi.
Samlíkingin er gerð enn sterkari með því að Mads kvænist Ingeborg, dóttur g r í s a höndlararns Larsens.
Bodil Udsen lést 26. febrúar síðastliðinn. Hún var frábær leikkona og fór afar eftirminnilega með hlutverk Fru Murermester Jessen í Matador. Margir kannast við óborganlega setningu hennar: Jeg har ikke lyst til kaffe, jeg t r æ n g e r !
En, nú er orðið laust og ræða má hvað það sem tengist Matador, það sem hér hefur verið sagt eða eitthvað allt annað þáttunum tengt.
Var þetta nú nauðsynlegt? Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Æ, nú er aftur orðið leiðinlegt!
Nú botna ég hvorki upp né niður. Hvernig getur Matador og leiðinlegt farið saman?
Nema þú sért að meina Matador í eftirfarandi skilningi:
Sér Karg koma akandi á drossíu sinni og leggja henni við hótelbyggingu Ívars í Austurstræti
Þið eruð ekki með öllum mjalla.
Hristir parrukkið
sendir Gunnþór beina leið í steininn
fær tvöþúsundkall fyrir að fara yfir byrjunarreitinn og kaupir víðimel
Notar sleppur við fangelsi spjaldið sitt og setur maraþonsýningu á öllum 24 þáttum Matadors í gang á tugum risatjalda, með gríðarstórt hlóðkerfi stillt í botn.
treður matador kassanum, öllum bílunum, húsunum, hótelunum og spilapeningunum upp í afturendann á Güntheri
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ágætt, þá efa ég að nokkur vilji spila á þetta sett framar.
En í hvaða þáttum (þeir voru tveir, af 24) sést spilið matador, spilað í Matador?
Mætir með nýtt sett
Svona hvaða andskotans fýla er þetta, klárum spilið
Kaupir Flugfélag Íslands
Öðru eins menningarleysi hef ég nú bara aldrei kynnst.
Brestur í óstöðvandi grát
Öðru eins menningarleysi hef ég nú bara aldrei kynnst.
Brestur í óstöðvandi grát
slær Gutta utanundir eins fast og hægt er Svona !...Spilum !