Einhversstaðar las ég að vinsælt væri að nýliðar kynni sig hér. Þykir mér þá lágmarks kurteisi að fara eftir þessari einföldu ábendingu. Hér er ég þá. Ómyndarlegasti ostaskeri sem fyrirfinnst, enda ekki komin með mynd. Ég lyfti því annari hendinni og dangla henni fram og til baka í því skyni að bjóða góðan dag.
Þú lofar góðu vinur minn, fylgstu með öðrum og þá á þér eftir að farnast vel.
Vertu svo hjartanlega velkominn.
Tekur ostaskerann og fær sér sneið af osti.
Já. Glæsilega gert hjá þér. Svona á fólk að haga sér.
Verst að þú skulir heita svona óþjálu nafni, en þú getur líklega lítið gert að því hvað þú ert skírður/nefndur.
Duglegur ertu bleiki.
Næsta skref er þá að finna innflytjendahliðið og bíða skipana.
VelkominnLjómar upp Það hefur alltaf vantað ostaskera hér.
Setur Aukasjálfagreiningartúrbínumaskínuna í gang, treður ostaskerararanum oní hana...
Hmm Skoðar niðurstöðuna þungt huxi á svip
[b]Bleiki[/b]... Hvæsi er bleikur.
[b]Ostaskeri[/b], ostaskeri er eldhúsáhald, Hvæsi er Kokkur, kokkar vinna í eldhúsum...
Niðurstaðan er sú að það eru 99.8% líkur á að þetta sé Hvæsatengt...*
[size=9]*Allar Líkindatölur settar fram án ábyrgðar.[/size]
[/i]
Setur sömu maskínuna af stað og fær út að grágrímur sé huxi.
Ég fæ mér oft ost á það brauð sem ég borða. Vertu því velkominn Bleiki Ostaskeri.
Ég hef það fyrir satt að bleikir ostaskerar bíti verr en aðrir.
Ég hef það fyrir satt að bleikir ostaskerar bíti verr en aðrir.
Meinarðu þá að bitin séu ekkert til að tala um eða að bitin geti verið slæm? Þurfum við kannski að fara í stífkrampasprautu?
Setur Aukasjálfagreiningartúrbínumaskínuna í gang, treður ostaskerararanum oní hana...
Hmm Skoðar niðurstöðuna þungt huxi á svip
[b]Bleiki[/b]... Hvæsi er bleikur.
[b]Ostaskeri[/b], ostaskeri er eldhúsáhald, Hvæsi er Kokkur, kokkar vinna í eldhúsum...
Niðurstaðan er sú að það eru 99.8% líkur á að þetta sé Hvæsatengt...*
[size=9]*Allar Líkindatölur settar fram án ábyrgðar.[/size]
[/i]
Blótar herfilega og rífur hár sitt
ÉG ER EKKI BLEIKUR !!!
Ég er blár !
Þú ert ostaskeri.
Mér þykir þetta ekki sniðugt. Ostaskerar eru til að skera ost, sem er það versta sem villst hefur inn fyrir mínar varir. Því mun ég hafa varann á mér gagvart þér. Svo þykir mér erfitt að taka eitthvað alvarlega sem er bleikt á litinn. Hrökklast um sviðið í slæmu fordómakasti
...enda ekki hægt að taka hann alvarlega.