Vitið þið hvað klukkan er?
Ku hún vera málmur og gler?
Gengur hún í görn á þér?
Vitið þið hvað klukkan er?
Ku hún vera málmur og gler?
Gengur hún í görn á þér?
Gekk hún yfir kónginn Lér?
Býður þú í morgunmat?
Máttu nota vaskafat?
Býður þú í morgunmat?
Máttu nota vaskafat?
Hefur þú séð hálfgert gat?
Býður þú í morgunmat?
Máttu nota vaskafat?
Hefur þú séð hálfgert gat?
Er hundasúra í matinn frat?
Hvar er best að kaupa dóp?
Að hverjum ætti að gera hróp?
Hvar er best að kaupa dóp?
Að hverjum ætti að gera hróp?
Hver var það sem heiminn skóp?
Hvar er best að kaupa dóp?
Að hverjum ætti að gera hróp?
Hver var það sem heiminn skóp?
Hlustar þú á fréttaglóp?
Áttu í skattaskjóli fé?
Áttu í skattaskjóli fé?
Skrifar þú oft x við Bé?
Skal urða þig við undað hné?
Áttu í skattaskjóli fé?
Skrifar þú oft x við Bé?
Skal urða þig við undað hné?
Ætti hjer að banna spje?
Heldur þú að grín sé gott?
Heldur þú að grín sé gott?
Er Geirmundur með ball á Spot?
Heldur þú að grín sé gott?
Er Geirmundur með ball á Spot?
Er Dyngja að verða heldur hot?
Heldurðu að grín sé gott?
Er Geirmundur með ball á Spot?
Er Dyngja að verða heldur hot?
Hrekktu þeir þig Knoll og Tott?