Mér finnst 2.504.208 miklu flottari tala.
2.504.208 = 2^4 * 3 * 7 * 29 * 257
Ég sé nú ekkert svo sérstakt hér.
Jah, ef þetta væri í krónum talið myndirðu örugglega vilja þessa tölu frekar en 49... Starir þegjandi út í loftið
Nei Dula mín, ekki núna. Seinna kannski. Ég er viss um að þú fúlsar ekki við 49 ára gömlum mönnum þegar þú ert sjálf orðin 59. Glottir
Nú erum við að tala saman KONA!Gefur frá sér vellíðunarstunu
En fyrst við vorum upphaflega að tala um aldur þá er 49 kannski ekki svo slæmt. Starir þegjandi út í loftið
Neeei... líklega er ekkert svo sárt að verða 49 ára...
stillir af 11 niður í 2 afsakið, ég áttaði mig ekki á því að ég væri með svona hátt stillthækkar uppí 7bölvað drasl er þettalækkar niður í 5Áðan var ég með stillt á 3 og það var fínt en svo breytist þetta!
49 er fín tala. Ég vil samt engan 49 ára kall.
Er að hugsa um að halda mig aðeins nær mínum aldri.
Miðað við sumt, sem hér hefur verið sagt, ætti ég fyrir löngu að vera kominn í úreldingu. Brestur í óstöðvandi grát og strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Pfrr. Neits. Þú ert svona einn af þessum mönnum sem tekst að vera ungur þótt þú sért orðinn gamall.
Fólk sem fer í sömu partý og ég er sko ekki úrelt þótt það sé komið langleiðina við að ná þriggja stafa aldri.
Heyrir í Tigru og kemur inn aftur Þú ert yndisleg. Ljómar upp Hvessir augun á Andþór Þegi þú, strákpjakkur.
Ha! Er Herbjörn að verða hundrað ára?
Langleiðina... ekki alla leið kjánabollan þín.
Heyrir í Tigru og kemur inn aftur Þú ert yndisleg. Ljómar upp Hvessir augun á Andþór Þegi þú, strákpjakkur.
Blóðþrýstingurinn Herbjörn, blóðþrýstingurinn.
Skammast sín í hausinn á sér.
Heyrir í Tigru og kemur inn aftur Þú ert yndisleg. Ljómar upp Hvessir augun á Andþór Þegi þú, strákpjakkur.
Blóðþrýstingurinn Herbjörn, blóðþrýstingurinn.
Skammast sín í hausinn á sér.
Otar göngustafnum að Andþóri Það er allt í lagi með þrýstinginn í mér.
Já svo segir Salka.
Glottir
Þess má geta að Castro hefur í dag ákveðið að stíga af valdastóli á Kúbu, eftir 49 ára setur þar.
Tilviljun? Dæmi hver fyrir sig ...