Ætlar fólk ekki að skella sér? Baggalútur spilar...og svo einhverjir suðurrískir blágresjungar með banjó.
Núna í kvöld ?
Hmmm... það er rússneskt þjóðlagastelpupönk á Nasa í kvöld. Ég væri reyndar alveg til í að kíkja á það!
Þetta verður þann 24. febrúar klukkan 21.
Ég verð þá sennilega andlendis. Brestur í óstöðvandi grát
Á sunnudagskvöldi! Þessu sunnudagskvöldi! Lyppast út af sviðinu með grátstafinn í kverkunum
Það telst vera líklegt að maður mæti. Flautar I don't feel like dancing í banjó útsetningu.
Ég hef mætt á tónleika hjá þessum snillingum. Það er segja bæði hjá Baggalút sem og Hayseed Dixie og get vottað að í sitthvorru lagi var þetta alveg ótrúlega skemmtilegt og ég næ varla tilhugsuninni hvað þetta verður magnað á einu og sama kvöldinu.
Mér finnst það barasta argasti dónaskapur að halda tónleika á sunnudagskvöldi. Það búa nú ekki allir á þessum útnára þarna fyrir sunnan! Blótar herfilega og rífur hár sitt
Það væri nú ekkert svo vitlaust að skella sér.
Jég held að jég hafi keypt fyrsta miðann!
Eru þeir byrjaðir að selja inn?
Hvar kaupir maður miða?
Midi.is?
Búinn að kaupa miða. Hlakkar heil ósköp til
Ég verð í Svíþjóð! Blótar herfilega og rífur hár sitt Gátu þeir ekki verið kvöldið áður ?
Ég kemst ekki, svo þið verðið bara að skemmta ykkur extra mikið. Brestur í óstöðvandi grát
Búin að kaupa miða!
Dansar
Ég mæti alveg örugglega.
Það er allavega verið að vinna í því að fá handa mér eitt stykki aðgangsmiðaGefur frá sér vellíðunarstunuLjómar upp