Alveg þykir mér ótrúlegt að enginn fjölmiðill, ekki einusinni sannleiksveitan Baggalútur, skuli hafa séð að skrípóið í ráðhúsinu er leikið eftir eldgömlu handriti, þ.e. Njálu.
Sbr. þessar setningar í 107. kafla:
Valgarður mælti: Illa hefir þú launað mér goðorðið er eg fékk þér í hendur að fara svo ómannlega með. Vil eg nú að þú launir þeim því að þeim dragi öllum til bana. En það er til þess að þú rægir þá saman og drepi synir Njáls Höskuld. En þar eru margir til eftirmáls um hann og munu þá Njálssynir af þeim sökum drepnir verða."
Eigi mun eg það gert geta," segir Mörður.
"Eg skal leggja ráðin til," segir Valgarður. "Þú skalt bjóða Njálssonum heim og leysa þá út með gjöfum. En svo fremi skalt þú rógið frammi hafa er orðin er vinátta með yður mikil og þeir trúa þér eigi verr en sér. Máttu svo hefnast við Skarphéðin þess er hann tók féið af þér eftir lát Gunnars. Munt þú svo fremi taka höfðingskap er þessir eru allir dauðir."
Þessa ráðagerð festu þeir með sér að sjá skyldi fram koma.[/g]
Rosalega er ég feginn að þeir studdust ekki við Njálsbrennuna sjálfa...
Það væri samt við hæfi! Nú er Davíð búinn að halda upp á sextugs afmælið sitt í kofanum, er ekki ráð að fá nýjan fyrir 70. afmælið?
Nei, ætli hann verði ekki að halda það í Egilshöllinni...
Annars þá finnst mér að Dagur B. eigi að nýta sér það ákvæði sem hefur verið sett um samkomur í ráðhúsinu á allir fyrrverandi borgarstjórar megi vera með partý...
Ef allir fyrrverandi borgarstjórar hafa rjett á að halda partý í ráðhúsinu þarf með þessu áframhaldi mjög fljótlega að byggja ný ráðhús og/eða stækka núverandi ráðhús og það mikið.
Ég legg til að Tjarnarsalurinn verði bara stækkaður að Iðnó í austri og tjarnarbrúnni í suðri.
Gefa þessu liði bara kúta og láta þá halda þessar samkomur í tjörninni sjálfri.
Mérfinnst nú bara skammarlegt að ómerkilegheit raunheima skuli flæða hér inn á Gestapó... komin 3 félagsrit og fer ábyggilega fjölgandi.
Og bæ ðe wei, Atburðarrásin í Njálu getur verið atburðarrásin í öllum átakasögum...
Það er dálítið erfitt að synda með hnífa í báðum höndum. Og bakinu.
Býður bæði Óvinum ríkisins og Óvini ríkisins, auk Huxa, í nýtt meirihlutasamstarf um stjórnina á svæðinu Dægurmál, lágmenning og listir
Ef allir fyrrverandi borgarstjórar hafa rjett á að halda partý í ráðhúsinu þarf með þessu áframhaldi mjög fljótlega að byggja ný ráðhús og/eða stækka núverandi ráðhús og það mikið.
Neh, ég er viss um að klausan var eitthvað á þá leið að allir fyrrverandi borgarstjórar sem ákváðu að byggja ráðhús í tjörninni mega halda veislur í því...
Nú teljast kannski afþreyingarvefir eins og B2 og 69.is ekki sem fjölmiðlar en það er gaman að sjá að reiðilestur Enters yfir borgarstjórninni er kominn inn á þá báða.
Nú teljast kannski afþreyingarvefir eins og B2 og 69.is ekki sem fjölmiðlar en það er gaman að sjá að reiðilestur Enters yfir borgarstjórninni er kominn inn á þá báða.
Hehe, sniðugt!
Baggalútur er eini miðillinn sem nokkur maður þarf nokkurn tímann á að halda. Nema kannski þegar maður vill taka smá spjall við Einstein.
Býður bæði Óvinum ríkisins og Óvini ríkisins, auk Huxa, í nýtt meirihlutasamstarf um stjórnina á svæðinu Dægurmál, lágmenning og listir
Ég vil þá fá einhverja fatapeninga (ca. 1.286.000.-) og hnífasett. Byrjar að plotta grimmt Svo vil ég fá nóg af róandi..

Útbýr starfssamning með kr. 1.286.000,- á mánuði í óskattskyldan fatastyrk og Bowie hnífasetti tvisvar á ári - sendir einnig pöntun á Vímus um nóg af róandi

Og hvað svo?