Að gefnu tilefni og til að hindra að óæskilegur orðrómur kunni að fara á kreik viljum vjer hjer með taka skýrt fram og lýsa yfir opinberlega að allur kostnaður vegna fatakaupa ráðherra og embættismanna í Baggalútíu er að sjálfsögðu greiddur 100% (stundum m.a.s. meira en 100%) af ríkissjóði Baggalútíu. Sje öðru haldið fram er þar á ferðinni rógburður sem kominn er frá óvinum baggalútíska heimsveldisins.
Þetta minnir mig á að ég þarf að endurnýja öll mín betri föt. Skoðar Armani bækling
Það minnir mig á að ég þarf að fá mér betri föt, til að geta endurnýjað þau.
Mig vantar nýjan mítur.
mætir í Armani jakkafötum með demantsskreytta ermahnappa og í Lloyds skóm
Þetta er náttúrulega bara vinnugallinn úr spillingarráðuneytinu.
2008 línan af spennitreyjum er í þessum rituðu orðum í framleiðslu í barnaþr... ég meina saumastofu okkar í ... einhvers staðar löglega
Flott. Sendu mér 25 stykki, sendu svo reikninginn til Vladimirs
Ég var einmitt að flissa yfir hvernig ég fór að því að eyða rúmlega 32 milljónum í sokka á meðan ég lá í dvala.
En það er engu að síður ánægjulegt að það megi ræða um þessi mál opinberlega hér um slóðir, sýnir hversu opnu og frjálsu samfélagi við lifum í.
hlær stórkarlalega og kveikir í öðru sokkapari