Traffic Music - Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons
Sú hljómsveit á einnig lag í þeirri ágætu mynd.
Flettu upp á Kimyu Dawson, hún er alger snillingur.
Sú hljómsveit á einnig lag í þeirri ágætu mynd.
Flettu upp á Kimyu Dawson, hún er alger snillingur.
Já, augljóslega. Stórkostlegt!
http://www.kimyadawson.com/lullabystream.html
Skemmtilegt hvað Juno hefur gert fyrir vinsældir Kimyu Dawson og Moldy Peaches... Anyone else but you er búið að vera eitt af uppáhalds lögunum mínum í 5 ár.
Þetta lag er í gríðarlegu uppáhaldi í augnablikinu, með kúbanska tónlistarmanninum Silvio Rodriguez, af plötunni Días y flores. Afar fallegt og sjarmerandi hvað píanóið er falskt, Kúbumennirnir hafa ef til vill ekki aðgang að bestu hljóðfærunum...
Verst hvað það eru léleg gæði á þessari youtube upptöku, þetta er mun flottara á plötunni.
Raining blood - Slayer.
Er eitthvað aggressívur akkúrat núna.
Raining blood - Slayer.
Er eitthvað aggressívur akkúrat núna.
Gott band, gott lag. Sá live útgáfu á KERRANG um daginn. Þeir eru ekkert að tapa gæðum karlarnir...
Romatnic rights - Death from Above 1979 !!!
Rokkk, ó já!
Ég er að rifja upp gamla Slayer takta, fara í gegnum það sem ég á með þeim og ekki síst um þá. Þar af leiðir að einhvernveginn er er nokkurnveginn í uppáhaldi hjá mér Angel of Death með Dokkaka.
Persephone - Wishbone Ash
Crackity Jones með Pixies.
Ein mínúta og 24 sekúndur af fullkomnun!
(Má ég biðja þráðarhefjanda að setja týnda Déið inn í heiti þráðarins?)
Annars á ég mörg uppáhaldslög, það fer eftir skapi og jafnvel veðri hverju sinni.
Hins vegar var mitt fyrsta uppáhaldslag "Hands up, baby hands up, gimme your love, gimme-gimme ooh lala..." eða hvað það nú annars hét. Ég var um það bil fjögurra ára og hafði lítinn samanburð við aðrar tónsmíðar. Grettir sig
Ég hlusta mikið á tónlist og stundum held ég meira upp á eitt lag en önnur í einhvern tíma. Svo fæ ég stundum lög á heilann og stöku sinnum bregður svo við að eitt og eitt lag, sem ég hef ekkert dálæti á, festist í heilanum án þess að ég fái nokkuð við ráðið.
Á þessari stundu á ég ekkert eitt uppáhaldslag, en ég læt vita næst þegar það gerist.
Meira frelsi með Merzedes Club er í miklu uppáhali þessastundina.
Meira frelsi með Merzedes Club er í miklu uppáhali þessastundina.
Ég hélt að nefnt lag væri aðallega í niðurhali hjá fólki um þessar mundir. Glottir eins og fífl
Ég var reyndar að uppáhala því (löngu búinn að niðurhala), & var að hugsa um að senda þér það í tölvupósti, Herbjörn minn . . .
Íhugar að skipta um tölvupóstfang
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri