Sko, Mér fannst þetta svona sæmó bara. Fannst reyndar gott að hafa Árna Jónsen þarna inn á milli að grafa göngin og koma upp hér og þar. Já og þegar Bergur gerði grín að Geir Ólafs. Það var snilld! Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Ég var sú eina á heimilinu sem gólaði af hlátri þegar bloggráðstefnan var, djö var það hrikalega fyndið.
Bloggráðstefnan var brosleg fyrstu 10 sek. Svo var það alveg tilefni til að skreppa á klóið... ég sat þó sem fastast.
Ég spái að það verði misjafnar skoðanir á skaupinu.... eins og vanalega. Enda útilokað að gera öllum til hæfis. Ég hafði gaman af mörgum atriðunum. T.d. Bubba atriðinu, og "mellu" atriðinu....
Skaup? Ég horfði ekki á það... ég var of upptekin við að fá mér staup!
Ég held að við hérna ættum að skrifa næsta skaup.
Ég er með
Þá þarf bara að koma tímavjelinni í lag svo hægt sje að byrja strax Ljómar upp.
Blessaður hentu saman veðurvélinni um leið þannig að við getum fengið almennileg áramót!
Þetta var ágætt skaup bara. Það skásta sem ég hef lengi séð.
Skaupið var alveg ágætt bara. Stundum verið betra, oft verið lélegra.
Ég tek undir orð Rattata...
Mér finnst að flugslysagrínið hefði mátt missa sín eða mátt vera styttra... ef svo hefði verið, þá hefði skaupið hugsanlega komist á topp 5 listan yfir bestu skaupin hingað til (það fer þó eftir því hvað hefði komið í staðin)...
Ég var mökkölvaður og hress. Hló mig máttlausann yfir þessu drasli.
En núna man ég ekkert eftir þessu. Skiptir svosem ekki máli.
Fátt var í skaupinu gott utan "Bíllinn hans Bubba" og svo bækurnar sívinsælu um Litla prakkarann Hitler.
En þótt skaupið hefði ekki verið gott þá toppaði Kaupþing það þó algerlega með auglýsingum John Cleese og Randvers Þorlákssonar, hvílíkur helvítis viðbjóður. Cleese með harðlífissvip eins og það væri eitthvað ókunnugt skordýr að skríða upp í afturendann á honum, án hans vilja, og Randver eins og hann væri að reyna að setja Íslandsmet í aumingjaskap og umkomuleysi. Og þetta átti að vera bráðfyndið! Ég vona að þá kitli ekki í puttana við að telja peningana sem þeir hirtu fyrir "auglýsingar" þessar.
Auglýsingin var ekkert fyndin... enda Jón Gnarr sem samdi hana.
Ég hló mest að gamla veika manninum sem kallaði eftir vatni en það var ekkert starfsfólk á spítalanum til að hjálpa honum.
Nei djók!
Mér fannst litli prakkarinn hann Hitler og tíu tælenskar kellingar koma sterk inn, kallinn sem rauk í fússi til að fara að blogga var góður og svo fannst mér afskaplega neyðarlega fyndið þegar allir útlendingarnir fóru að syngja Ísland er land þitt við nauðungarvinnu í frystihúsi og Bubbadjókurinn var líka ógeðslega fyndinn.
Lost húmorinn var ömurlegur eins og hann lagði sig þótt mér hafi reyndar þótt fyndið þegar Guðmundur í byrginu birtist, Árna Johnsen húmorinn er glataður og þreyttur og eymd gamla mannsins á sjúkrahúsinu fékk mig frekar til að tárast en hlæja.
Í heildina fannst mér skaupið mjög fyndið þótt mig minni reyndar að ég hafi hlegið meira í fyrra.
Mínar skoðanir á þessu breytast hraðar en hraði Concorde þotu (þær eru reyndar ekki lengur í umferð)