...var bara helvíti gott. Eða hvað fannst þér?
Entist í fimm mínútur yfir þessari ömurlegu drullu.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Æ, góði láttekkisona. Byttan þín.
Fyrsta sinn á ævinni sem ég ekki sá skaupið... og l+iður bara vel yfir því. xT
Fyrsta sinn á ævinni sem ég ekki sá skaupið... og l+iður bara vel yfir því. xT
Ha? Þegar Baggalútsmenn(Enter og hinn addna) semja handritið (með einhverjum noboddís + Rassa Prump) missirðu af því?!
Þú ert hér með gerður brottrækur af Baggalúti og Gestapó!
Er einhver afsökun að hafa verið í úglöndum?
Nei. Bastarður. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég verð að segja að mér fannst það ekkert spes, vaðið úr einu í annað, og þessir strönduðu útlendingar voru í rauninni ekkert voða fyndnir, nema kannski Steinn Ármann, hann er fínn.
Mér finnst skaupið misheppnað ef það fær mig bara til að flissa að öðru hvoru atriði... sorrí.
Skaupið var fínt. Reyndar þurfti að útskýra sumt fyrir mér, svo sem kosningapartí Smúls Ö. Ellingsen. Einnig hafði ég aldrei séð Lost og fattaði ekki út á hvað brandarar byggðir á þeim þáttum gengu. En þetta var gott. Ég hafði ekki séð áramótaskaup síðan fyrir aldamót og hef svo sem ekki saknað þeirra verulega. Afbragðspunktar inn á milli.
Örvar róni var æðislegur. Jón Gnarr var frábær. Brosti nokkrum sinnum - þó ekki upphátt.
Ég segi eins og Billi, ég brosti nokkrum sinnum en aldrei upphátt. Ég hef séð betri skaup en þetta en líka önnur mun lakari.
Eins og ég segi; samkvæmt skaups-viðmiðum var þetta mjög gott skaup -a.m.k. betra en í fyrra, sem er allt sem skiptir máli.
P.s. Á einhver skaupin '90, '91, '92' eða fyrr á tölvutæku formi?
Eins og ég sagði annarsstaðar þá fannst mér þetta skaup það besta í allmörg ár.
Ég ákvað fyrstu mínúturnar að þetta væri ömurlegasta skaup allra tíma. (Ég hef horft á einn og hálfan Lostþátt um æfina og skildi ekki grínið.) Svo komu samt mörg fyndin atriði og ég hló oft upphátt og fannst skaupið bara fínt!
Mér fannst skaupið lélegt. Mjög langt síðan ég hef glott svona lítið og aldrei upphátt. Lúkasarkertafleytingin fannst mér alveg 2 glott, róninn á Arnarhóli líka og bloggtilvísanir 1 glott. Grátlega leiðinlegt skaup að þessu sinni. Kannski Ragnar detti blessunarlega úr tísku núna.
Þetta skaup sökkaði svo mikið að það voru flugeldar á lofti á meðan það var í gangi og ég sendi og fékk sms, það er mælikvarði á lélegheitin.