Gleðileg jól, elsku dúllurassgötin mín, mikið vona ég að þið eigið öll ánægjulega stund yfir hátíðirnar.
Speglast skraut á skóm odd-mjóum,
skvettist vín á kjóla.
Glaður óska Gestapóum
gleðilegra jóla.
Jólakveðjur frá Golíat group. Hafið það sem best um hátíðarnar póarnir mínir.
Hafið það gott lömbin mín. Borðið eitthvað gott og hagið ykkur vel.
Úps...? Ég borðaði eitt lambið áðan... Ég vona að það hafi ekki verið eitt af þeim sem þú varst að senda kveðjur til.
Öllum Gestapóum, nær og fjær, til sjávar og sveita, innanlands jafnt sem utan, upp til heiða og fram til dala... Ok, þið hljótiið að vera búin að ná þessu... Uhumm, hvert var ég komin... Já ég óska öllum Gestapóum... Tuldrar eitthvað óskiljanlegt í 23 sek. ...óska ég hinna gleðiríkustu jóla og gæfuhlöðum komandi árum. Megi Baggalútur blífa um aldir alda.
AMEN
Gleðileg jól, borðið vel og knúsið þá sem ykkur þykir vænt um! Knúsar Gestapóa nær og fjær
Hvæsi sendir öllum gestapóum sínar hugheilustu jólakveðjur.
Lífið myndi sökka feitt án ykkar.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég óska öllum til hamingju með jólin.... nema þér.
Gleðilega hátíð elskurnar mínar. sendir jólastrauma útum allt
GLEÐILEG JÓL!
Gleðó millijóló. Besti tími ársins. Þarf ekki að gera neitt nema horfa á varp og gefa ungum að éta.
Mikið langar mig í döðlubrauð. Ljómar upp
Jóla hvað?
Gleðileg jól kæru vinir.
Bara vera snemma í þessu svo það gleymist ekki.
Gleðileg Jól gestapóar hvar sem er í veröldinni.
Gleðilegt jól.
Gleðileg jól elskurnar mínar allar.
Madam Escoffier sendir súkkulaðihjúpaðar jólakveðjur til allra Gestapóa og pía nær og fjær. Megi hátíðarnar færa ykkur öllum fjölmörg og verðskulduð aukakíló.