Mikið er ég glöð að vera loksins komin inná Baggalút, en ég hef lengi haft mikið dálæti á Sundlaugi Vatne. Ég heiti Hestgerður Hófdal og er ættuð frá Hrossadal í Jófirði. Við í Hrossadal erum helst þekkt fyrir bílskúrssölu á kláravíni og kaplamjólk, en þeir drykkir gefa manni mikinn vilja og yfirferð, séu þeir blandaðir í réttum hlutföllum. Við höfum einnig átta hófa hreina og stundum stóðlifi grimmt. Meira síðar........
Hestgerður Hófdal, leynilegur aðdáandi virðir fyrirbrigðið fyrir sér í öruggri fjarlæg. Ég er nú ekki viss hvort mér líkar þessi aðdáun. Þú lofar ekkert sérstaklega góðu, brussan þín.
Mig grunar það, Hr. Sundlaugur, að þér elskið að eiga aðdáanda og hver segir að ég sé brussa? Klórar sér í höfðinu Ég var kosin Ungrú stóðmeri Jófjarðar á því herrans ári 1982, enda með 9,5 fyrir byggingu og 10 fyrir vilja og geðslag (ég var hins vegar léleg í skeiði)
hneggjar af hlátri
Hneggjar með
Gefur Hestgerði hey hey hey
Færir Hestgerði texta lagsins Ho, ho, ho we say hey, hey, hey
Vjer bjóðum yður hjer með formlega velkomna með hefðbundnum fyrirvörum.
Þakka ykkur öllum kærlega fyrir Ljómar upp Mér finnst þið ótrúlega klár og hlakka til að tak hnakk minn og hossast með ykkur í vetur.
Og truntastu svo í innflytjendahliðið og finndu þér gerði þar til að brokka um í þar til Texi fær að skoða geiflurnar í þér góða mínslær í lendina á hryssunni
Gefstu nokkuð upp við minnsta mótlæti eins og flestir nýliðar? Huxar um hvort nýliðinn sé á vetur setjandi
Velkomin merin þín.
Veltir fyrir sér hvernig nýliðinn myndi bragðast með kartöflum og uppstúf
Horfir á nýliðan efins
Ég veit ekki... allir þessir nýliðar komnir. Hefur einhver verið að segja frá Gestapó? Þarf ekki að fara að binda enda á þessa vitleysu? Flestir koma hingað í einn dag, skrifa nokkur innlegg og hverfa svo. Ég segi að ásamt innflytjendahliðinu verði eitthverskonar þraut sem lögð verður fyrir nýliðana.
Klappar Aulanum á bakið Þar sagðir þú eitthvað af viti, aulinn þinn.
Það kann að vera góð hugmynd en það gæti gert annað vandamál verra: Það vandamál að stundum hverfa nýliðar sem óæskilegt er að hverfi sje mið tekið af hegðun þeirra hjer í byrjun.
Mér er alveg sama. Gömlu góðu Gestapóarnir eru fullkomnir. Ljómar upp
Það er ekki rétt. Enginn er fullkominn. Endurnýjun er nauðsynleg. Það eru alltaf að bætast í hópinn skemmtilegir nýliðar. Það er nú bara rúmt ár síðan þau heiðursfólkið Regína, krossgata og Billi bilaði birtust hérna. Síðan eru td þeir Huxi, Andþór og Óskar Wilde nýmættir hér, en bráðefnilegir Bagglýtingar og velkomin viðbót við flóruna.
Þetta er meira og minna sama pakkið sem gengur undir mismunandi nöfnum. En sama er mér, svo lengi sem þau ganga ekki yfir strikið í leiðindum.
Þetta er meira og minna sama pakkið sem gengur undir mismunandi nöfnum. En sama er mér, svo lengi sem þau ganga ekki yfir strikið í leiðindum.
Alltaf jákvæður!